Bókun 35 – stjórnarskráin verður ekki sniðgengin
Deilan um bókun 35 við EES-samninginn snýst um miklu meira en tæknilega útfærslu á alþjóðlegri skuldbindingu Íslands. Hún snýst um stöðu Alþingis, mörk löggjafarvaldsins og þá stjórnskipulegu málamiðlun sem gerði Íslandi kleift að gerast aðili að Evrópska efnahagssvæðinu fyrir rúmum þremur áratugum.
