Dómstóll sagður vera til skammar
„Á undanförnum árum hefur orðið mikil gróska í stofnunum sem byggja starfsemi sína á innantómum fullyrðingum og blekkingum. Þar má nefna Alþjóðasamtök fræðimanna um þjóðarmorð (International Association of Genocide Scholars), samtök sem komust skyndilega í sviðsljósið á síðasta ári þegar starfsemi þeirra var endurvakin í þeim tilgangi að saka Ísrael um „þjóðarmorð“ á Gaza. Þá er það Alþjóðadómstóllinn í Haag (ICJ), pólitískur sýndardómstóll sem virðist staðráðinn í að hraða málsmeðferð sömu ásakana um þjóðarmorð. Einnig má nefna mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna, þar sem eini fasti dagskrárliðurinn sem sérstaklega er helgaður einu ríki fjallar – já, einmitt – um ríki gyðinga. Og þannig mætti lengi telja.“
Þannig kemst Douglas Murray að orði í upphafi blaðagreinar sem birtist á vef The Free Press 13. október síðastliðinn. Murray er breskur rithöfundur, blaðamaður og stjórnmálaskýrandi, þekktur fyrir beinskeytta gagnrýni á pólitíska rétthugsun, íslamska öfgahyggju og þróun vestrænna samfélaga. Hann er höfundur metsölubókanna The Strange Death of Europe og The War on the West og skrifar reglulega um stjórnmál, menningu og alþjóðamál. Hann er fastur dálkahöfundur hjá The Free Press og fleiri fjölmiðlum.

Í pistlinum gagnrýnir Murray Alþjóða sakamáladómstólinn (ICC) harðlega og bendir á að frá stofnun árið 2002 hafi dómstóllinn verið pólitískt verkfæri. Á fyrsta áratug aldarinnar gagnrýndu Evrópuríki, sem höfðu gerst aðilar að dómstólnum, ríkisstjórn George W. Bush ítrekað fyrir að neita að gera Bandaríkin að aðildarríki hinnar nýju stofnunar. En ríkisstjórn Bush fylgdi þeirri stefnu sem ríkisstjórnir bæði demókrata og repúblikana höfðu áður fylgt og hafa fylgt síðan: Enginn bandarískur stjórnmálamaður eða hermaður á nokkurn tíma að þurfa að sæta lögsögu erlends dómstóls vegna starfa sinna. Bandarískt réttarkerfi sé fullnægjandi.
Murray segir að ástæðurnar að baki þessari afstöðu bandarískra stjórnvalda hafi orðið æ ljósari eftir því sem árin hafa liðið og hann tekur dæmi frá 2002 þegar verið var að koma dómstólnum á fót. Þá reyndi spænski dómarinn Baltasar Garzón að kalla Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til vitnis vegna rannsóknar á meintum mannréttindabrotum herforingjastjórna í Suður-Ameríku. Garzón vildi yfirheyra Kissinger um hvað bandarísk stjórnvöld hefðu vitað um þessi meintu brot. Bresk yfirvöld, en Kissinger dvaldist þá í Bretlandi, höfnuðu beiðninni.
Þessi tilraun dómarans hafi verið mikilvæg áminning: Ef Bandaríkin gengjust einhvern tíma undir lögsögu erlends dómstóls væri hægt að beita alþjóðlegri eða erlendri refsilögsögu gegn Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra – og það yrði gert.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gekk viku skrefi lengra í andstöðu Bandaríkjanna við Alþjóðlega sakamáladómstólinn fyrr í október. Bandarískir ríkisborgarar og fyrirtæki munu sæta viðurlögum ef þau eiga viðskipti við dómstólinn.
Í yfirlýsingu sem Rubio birti á samfélagsmiðlum sagði hann:
„Við munum banna viðskipti við þennan stjórnlausa dómstól, svipta hann fjármagni og lama getu hans til að beita sér gegn okkur. Skilaboð okkar eru skýr: Bandaríkin og bandaríska þjóðin lúta ekki lögsögu þessa falska Alþjóðlega sakamáladómstóls.“
Murray fagnar þessum aðgerðum enda hafi Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hvað eftir annað sýnt fram á skort á eigin lögmæti. Þá hafi ákvörðun norsku Nóbelsnefndarinnar um að veita suðurafríska dómaranum Navanethem „Navi“ Pillay friðarverðlaun ekki dregið úr óánægju ríkisstjórnar Donalds Trumps. Pillay var dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og gegnir nú dómarastörfum við Alþjóðadómstólinn í Haag. Nóbelsnefndin tekur sérstaklega fram að Pillay hefði verið valin vegna þess að „stofnanir alþjóðaréttar sæta pólitískum árásum“. Murray segir að nefndin hafi kosið að líta fram hjá því að þessar stofnanir sæta pólitískri gagnrýni einmitt vegna þess að þær eru sjálfar rótgrónar pólitískar stofnanir.
Murray, sem hefur stutt Ísrael, segir að aðeins nokkrum dögum eftir hryðjuverkaárásirnar á Ísrael 7. október 2023 hafi Pillay lýst því yfir að hún hygðist rannsaka „rétt Ísraels til varna“. Hún var þá formaður sjálfstæðrar alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um hernumdu palestínsku landsvæðin:
„Pillay sagði jafnframt að viðbrögð Ísraels við fjöldamorðunum, sem Hamas hafði staðið fyrir, væru „miklu fremur hefndaraðgerðir og hefnd“. Þetta sagði hún áður en ísraelskar hersveitir höfðu yfirleitt farið inn á Gaza.
Það kemur því tæpast á óvart að Pillay skyldi verja næstu mánuðum í að reyna að byggja upp mál til að finna Ísrael sekt um glæpi sem hún hafði í raun þegar gefið sterklega til kynna að ríkið hefði framið.“
Douglas Murray nefnir annað dæmi sem hann telur afhjúpa pólitíska hlutdrægni Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Sjö mánuðum eftir hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október 2023 tilkynnti Karim Khan, saksóknari dómstólsins, að óskað yrði handtökuskipana á hendur Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, Yoav Gallant varnarmálaráðherra og leiðtogum Hamas. Murray telur fráleitt að setja leiðtoga lýðræðisríkis á sama stall og hryðjuverkamenn sem báru ábyrgð á mestu fjöldamorðum á gyðingum frá helförinni. Hann heldur því fram að dómstólinn hafi skort lögsögu og að rannsókn á meintum stríðsglæpum hafi ekki verið lokið þegar ákvörðunin var kynnt. Að mati Murray hafi Khan í raun aðeins haft ísraelsku leiðtogana í sigtinu. Hann bendir jafnframt á að Khan hafi síðar sætt rannsókn vegna ásakana um kynferðisbrot gegn samstarfskonu. Murray telur málið, ásamt framgöngu Navi Pillay, sýna hvernig alþjóðlegar réttarfarsstofnanir séu orðnar pólitísk verkfæri fremur en óhlutdrægir verndarar réttlætisins.
