Yfir 35 milljarðar í arðgreiðslur til Reykjavíkur
Arðgreiðslur Orkuveitunnar til eigenda sinna frá 2017 nema alls 32,5 milljörðum króna eða um 37,8 milljörðum á meðalverðlagi síðasta árs. Þar af er hlutur Reykjavíkurborgar um 35,2 milljarðar á föstu verðlagi. Við þetta bætist áætluð arðgreiðsla á þessu ári en stefnt er að því að Orkuveitan greiði um 4,2 milljarða.
Í frétt Morgunblaðsins 19. janúar kom fram að Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, hefðu hækkað fastagjald hitaveitu um 48,9% á einu ári án þess að þær hækkanir hefðu verið kynntar borgarfulltrúum. Ástæða hækkunar er sögð vera að mannfjöldi hafi aukist verulega á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum og bendi mannfjöldaspár til þess að sú þróun haldi áfram. Í svari Veitna til Morgunblaðsins segir að til að „tryggja komandi kynslóðum örugga afhendingu á heitu vatni er óhjákvæmilegt að gera breytingar á gjaldskrá hitaveitu til að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum og tryggja að íbúar og fyrirtæki á öllu veitusvæðinu fái heitt vatn með öruggum hætti í dag og til framtíðar.“

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogsbæjar mótmælir þessum hækkunum harðlega í færslu á Facebook. Hún bendir á að á undanförnum árum hafi Orkuveitan greitt tugi milljarða til Reykjavíkurborgar í arðgreiðslur sem hafi farið í að brúa hallarekstur borgarinnar:
„Þessar hækkanir eru algjörlega úr takti við það sem við erum að sjá í samfélaginu. Röksemdarfærslan er sú að þessar hækkanir eigi að standa undir framkvæmdum framtíðarinnar en auðvitað blasir við að þessar hækkanir eru fyrst og fremst til að mæta væntum arðgreiðslum til Reykjavíkurborgar.
Í stað þess að draga úr arðgreiðslum til borgarinnar og brúa hallarekstur með raunverulegri tiltekt í borginni — er reikningurinn sendur á notendur, þar með talið Kópavogsbúa.
Þetta er með öllu óásættanlegt. Við munum mótmæla þessu af krafti.“
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir þessar hækkanir vera „dulbúin skattahækkun“ og gangi í berhögg við kjarasamninga. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness segir þetta skýrt dæmi um „gjaldagleði ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu, þar sem byrðunum er velt yfir á almenning og það á sama tíma og nánast allur hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur er tekinn út í formi arðgreiðslna“. Í Facebook færslu skrifar Vilhjálmur það blasa við „að íslenskt launafólk var svikið, því við gerð kjarasamninga árið 2024 lofuðu ríki, sveitarfélög og fyrirtæki í opinberri eigu sem og verslun og þjónusta að halda aftur af gjaldskrár- og verðlagshækkunum“.
