Jón Gnarr og brestirnir innan Viðreisnar

Úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar er meira en persónulegur ágreiningur eins þingmanns við samstarfsfólk sitt. Hún hefur vakið upp spurningar um innra starf flokksins, pólitíska forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og þá samstöðu sem nauðsynleg er innan stjórnmálaflokks, ekki síst þegar hann er í ríkisstjórn.

Jón hefur ekki aðeins lýst óánægju með forgangsröðun málefna heldur einnig gagnrýnt starfshætti, ákvarðanatöku og forystu Viðreisnar. Hann hefur talað um klíkumyndun, forystuleysi og ákvarðanafælni. Slíkar ásakanir frá sitjandi þingmanni verða ekki afgreiddar sem venjulegur ágreiningur um einstök þingmál.

Þótt Jón telji sér ekki lengur fært að starfa innan þingflokksins ætlar hann að vera áfram félagi í Viðreisn og styðja ríkisstjórnina. Samhliða úrsögninni hefur verið gerður sérstakur samstarfssamningur milli hans og þingflokksins. Fyrirkomulagið er óvenjulegt í íslenskri þingræðishefð, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Forystan hefur brugðist mér

Í Kastljósi síðastliðinn fimmtudag (15. október) sagði Jón að ákvörðunin hefði átt sér langan aðdraganda. Hann hefði ítrekað reynt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og átt fundi og samtöl um þau mál sem honum væru hugleikin. Sérstaklega nefndi hann málefni barna í alvarlegum vanda og áherslur sínar á einstaklingsfrelsi. Að hans mati hefðu þessi mál ekki fengið þann forgang innan þingflokksins sem hann taldi nauðsynlegan.

Gagnrýni Jóns Gnarr beinist ekki síst að formanni Viðreisnar Þorgerðir Katrínu, þótt hann nefni hana ekki á nafn.

En gagnrýni Jóns nær langt út fyrir ágreining um stefnumál. Hann lýsti innra starfi þingflokksins sem óheilbrigðu og taldi skorta skýra forystu og skilvirka ákvarðanatöku. Hann sagðist sjálfur hafa staðið við skyldur sínar en að forysta flokksins hefði brugðist sér. Þar með beindi hann gagnrýninni að þeim sem bera ábyrgð á pólitískri forystu og skipulagi þingflokksins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist sjá eftir Jóni en hún hafi átt gott samstarf við hann. Jón telur hins vegar að vandinn hafi verið svo djúpstæður að honum hafi ekki verið stætt á að sitja áfram í þingflokknum.

Þeirri spurningu er ósvarað hvers vegna ekki tókst að leysa ágreininginn innan flokksins. Þorgerður segir að Jón hafi sjálfur tekið þátt í vinnu við stefnumótun og endurskoðun starfshátta. Ef sú vinna var þegar hafin, hvers vegna taldi hann þá nauðsynlegt að stíga svo afdrifaríkt skref? Var ágreiningurinn um stefnu, framkvæmd breytinga eða traust á forystunni sjálfri? Svör við þessum spurningum geta hvorki forysta Viðreisnar né Jón Gnarr komist hjá að svara.

Össur sér víðtækari vanda

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, hefur sett úrsögn Jóns í víðara pólitískt samhengi. Hann telur hana mikið áfall fyrir Viðreisn og túlkar hana sem vantraust á forystu flokksins. Össur hefur jafnframt haldið því fram að óánægja með kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið í ágúst sé þekkt innan stjórnarliðsins, ekki síst í Viðreisn.

Þessi túlkun Össurar, sem hann setti fram í færslu á Facebook, vekur athygli vegna þess að hún setur innanflokksátök í Viðreisn í samhengi við eitt stærsta pólitíska deilumál ársins. Viðreisn hefur um árabil gert Evrópumálið að einu helsta stefnumáli sínu og um leið varpar Össur ljósi á þá óánægju sem er innan raða Samfylkingar með framgöngu Þorgerðar Katrínar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Össur heldur því fram að meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar sé „talað um það í öllum hornum, ekki síst innan Viðreisnar, – en enginn vill rjúfa friðinn og segja það upphátt fyrr en Jón Gnarr“.

„Hafi hann heila þökk!“ skrifar Össur og bætir við:

„Mörgum finnst nefnilega þeir þurfa skýringar, lyktir, á framkvæmd baráttunnar sem felast í öðru en bara þeim að andstæðingar ESB hafi verið svo duglegir að ljúga. Það skýrir vitaskuld ekki hvernig tókst að snúa yfirburða fylgi upp í tap á tæpu sumri.

Ólafur Ragnar og Sólveig Anna skýra það ekki heldur. Skýringanna er að leita miklu nær Viðreisn.

Þessu skylt, segir Jón Gnarr, var þörf á því í kjölfar tapsins að Viðreisn skilgreindi stöðu sína upp á nýtt. Því hafnaði forystan í kjölfar Evróputapsins á þeim forsendum að Viðreisn sé ekki eins máls flokkur.

Það má vel vera. Skortur á því að gera upp kosningabaráttuna, skilgreina hvað fór úrskeiðis og læra af því skaðar hins vegar Evrópuhreyfinguna til framtíðar. Eða er baráttunni lokið? Hefur Viðreisn gefist upp?“

Í huga Össurar er hræðsla Viðreisnar við að skilgreina stöðu sína í íslenskum stjórnmálum óskiljanleg:

„Framtíðin felst ekki í því að sópa vandamálum dagsins undir teppið eða kaffæra sig með ferðalögum og annríki. Þá tapast að lokum meira en einn fyrrverandi borgarstjóri.“

Úr þingflokknum – en samt í samstarfi

Sérkennilegasti þátturinn í brotthvarfi Jóns er svokallaður samstarfssamningur sem gerður var samhliða úrsögninni. Jón telur sig ekki lengur geta starfað innan þingflokksins vegna ágreinings um forystu, starfshætti og forgangsröðun. Samt hefur hann samið við sama þingflokk um að styðja ríkisstjórnina, greiða atkvæði með fjárlögum og mikilvægum stjórnarfrumvörpum og halda áfram að sinna tilteknum nefndarstörfum. Þetta er óvenjuleg málamiðlun sem kallar á skýringu á því hvað breytist í raun við úrsögnina.

Yfirleitt hefur úrsögn þingmanns úr þingflokki einnig markað endalok aðildar að stjórnmálaflokknum. Jón hefur hins vegar ákveðið að vera áfram félagi í Viðreisn, að minnsta kosti um sinn. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, hefur bent á sérstöðu þessa fyrirkomulags og líkt því við opið hjónaband fremur en hefðbundinn skilnað. Samningur af þessu tagi er að minnsta kosti óvenjulegur í íslenskri þingræðishefð – raunar fordæmalaus.

Ekki verður séð að áframhaldandi nefndarseta Jóns ráði úrslitum um afgreiðslu mikilvægustu stjórnarfrumvarpanna. Hann situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sem hefur fyrst og fremst stjórnskipuleg mál og eftirlit með framkvæmdarvaldinu á sinni könnu, en ekki þann fjölda efnahags- og velferðarfrumvarpa sem fer um sumar aðrar fastanefndir. Nefndarsetan hefur hins vegar hagnýta þýðingu fyrir þingflokk Viðreisnar, þar sem þrír þingmenn gegna ráðherraembættum og þingflokksformaður þarf að sinna umfangsmiklum samhæfingarverkefnum.

Samkomulagið vekur því spurningar um hvort verið sé að varðveita pólitískt samstarf, tryggja mönnun þingstarfa eða hvort tveggja. Það breytir ekki þeirri staðreynd að Jón hefur opinberlega lýst alvarlegum trúnaðarbresti gagnvart forystunni. Hann er farinn úr þingflokknum, en samstarfið um helstu verkefni hans heldur áfram, enn um sinn.

Tveir stjórnarþingmenn á sex mánuðum

Úrsögn Jóns er ekki fyrsta brotthvarf þingmanns úr stjórnarþingflokki á þessu ári. Í apríl sagði Guðmundur Ingi Kristinsson sig úr Flokki fólksins og þingflokki hans vegna trúnaðarbrests þegar honum var bolað úr ráðherraembætti. Hann hélt áfram þingmennsku utan flokka og lýsti yfir stuðningi við ríkisstjórnina.

Guðmundur Ingi sagði skilið við Flokk fólksins.

Málin eru hins vegar í mörgu ólík. Guðmundur Ingi yfirgaf bæði stjórnmálaflokk og þingflokk, en Jón hefur aðeins yfirgefið þingflokkinn. Báðir hafa þó lýst ágreiningi sem þeir töldu sig ekki geta leyst innan sinna þingflokka. Það gefur tilefni til að skoða hvernig stjórnarflokkarnir taka á innri ágreiningi og hvort þingmenn telji sig hafa nægilegt svigrúm til að fylgja eigin sannfæringu.

Ríkisstjórnin hefur ekki misst yfirlýstan meirihlutastuðning á Alþingi. Þótt tveir þingmenn sem kjörnir voru fyrir stjórnarflokkana starfi nú utan þingflokka hafa þeir báðir lýst yfir áframhaldandi stuðningi við stjórnina. Stjórnarmeirihlutinn hefur því breyst að formi en ekki þegar kemur að þingstyrk.

Það er þó munur á formlegum meirihluta og pólitískri samstöðu. Ríkisstjórn getur haldið meirihluta sínum þótt samstarfið verði flóknara með auknum óróa innan stjórnarflokkanna.

Sjálfstæði þingmannsins og agi þingflokksins

Jón hefur sjálfur vísað til 48. greinar stjórnarskrárinnar, þar sem kveðið er á um að alþingismenn séu eingöngu bundnir við sannfæringu sína en ekki reglur frá kjósendum. Ákvæðið undirstrikar að þingmaður fer með sjálfstætt umboð og er ekki lagalega bundinn fyrirmælum stjórnmálaflokks síns. Það er ein af grundvallarreglum íslenskrar stjórnskipunar.

En þingræðið byggist jafnframt á því að stjórnmálaflokkar geti myndað starfhæfa meirihluta, samið um stefnu og tryggt framgang hennar á Alþingi. Þar koma til þingflokksagi, samráð og pólitísk ábyrgð. Spennan milli sjálfstæðis þingmannsins og nauðsynjar samstöðu innan þingflokks er því ekki ný, þótt lausnin sem Jón og Viðreisn hafa valið sé óvenjuleg.

Hvað tekur við hjá Viðreisn?

Úrsögn Jóns Gnarr hefur þegar haft pólitískar afleiðingar. Hún hefur leitt innri ágreining Viðreisnar út í opinbera umræðu og kallað fram spurningar um forystu, starfshætti og pólitíska stefnu flokksins

Þorgerður Katrín hefur lýst vilja til að halda dyrunum opnum fyrir endurkomu Jóns. Það er hins vegar ekki eingöngu undir henni komið hvort traustið verður endurreist. Jón hefur sjálfur sett fram gagnrýni sem snertir grundvallaratriði í innra starfi flokksins og það mun skipta máli hvernig brugðist verður við henni. Ef ágreiningurinn reynist afmarkaður við samskipti hans og forystunnar getur málið þróast með öðrum hætti en ef fleiri þingmenn eða flokksmenn lýsa sambærilegum áhyggjum.

Ljóst er að forysta Viðreisnar stendur frammi fyrir spurningum sem ekki verður svarað með því einu að benda á áframhaldandi stuðning Jóns við ríkisstjórnina.

Úrsögn Jóns Gnarr er áminning um að pólitísk samstaða snýst ekki aðeins um atkvæði í þingsal. Hún byggist einnig á trausti, gagnkvæmri virðingu og þeirri tilfinningu þingmanna að þeir hafi raunveruleg áhrif á stefnu og starfshætti flokksins, að á þá sé hlustað og virðing borin fyrir sjónarmiðum þeirra.