Verðbólga er heimatilbúið vandamál

Hægt og bítandi er að koma í ljós að aukin verðbólga er að mestu heimatilbúið vandamál í boði ríkisstjórnarinnar. Að óbreyttu stefnir í að verðbólga verði um eða yfir 5% í janúar sem er veruleg hækkun frá því í desember þegar verðlag hækkaði um 4,5%. Við þessar aðstæður eru litlar eða engar líkur á því að peningastefnunefnd Seðlabankans telji skynsamlegt að lækka stýrivexti á næsta fundi sínum í febrúar.

Greiningadeildir bankanna reikna með að verðbólga aukist í yfirstandandi mánuði. Landsbankinn spáir 5,1% verðbólgu en greiningardeild Arion reiknar með 5%: „Ef rétt reynist eykst verðbólgan úr 4,5% í desember í 5,0% í janúar, sem eru vægast sagt nöturlegar fréttir fyrir land, þjóð og peningastefnunefnd Seðlabankans.“

Báðar greiningardeildirnar benda á að veruleg óvissa sé um verðbólgumælingu janúarmánaða. Óljóst sé hvaða áhrif nýtt fyrirkomulag á gjöldum af ökutækjum og gjaldskrárbreytingar hafi og hversu mikið útsölur vegi þar á móti. Um sé að ræða verðbólguhrærigraut í boði hins opinbera. Á sama tíma og verðbólga er að aukast er ljóst að meiri slaki er í efnahagslífinu en áður eins og aukið atvinnuleysi ber merki um. Haldi óhagstæð þróun á vinnumarkaði og minnkandi efnahagsumsvif áfram kann svo að fara að Seðlabankinn neyðist til að lækka vexti, ekki vegna aukins verðstöðugleika heldur til að koma í veg fyrir verulegan samdrátt.