Tillaga um þjóðaratkvæði ekki á þingmálaskrá

Athygli vekur að í endurskoðaðri þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er ekki að finna þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta er sérstaklega athyglisvert í ljósi þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hélt því fram í viðtali við fréttastofu ríkisins 6. janúar síðastliðinn að tillagan muni líta dagsins ljós á vorþingi.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fari fram eigi síðar en 2027. Ætli ríkisstjórnin sér að leggja tillöguna fram til afgreiðslu fyrir sumarið er ljóst að tíminn er naumur. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er gert ráð fyrir að kjördæmavika sé í síðustu viku febrúarsíðasta vika febrúar. Dymbilvika hefst 30. mars og þing kemur ekki saman aftur fyrr en 13. apríl. Þá eru hvorki þingfundir né nefndafundir síðustu 10 dagana fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem verða 16. maí.

Tímaramminn er þröngur en augljóst er að töluverður tími mun fara í umræður í þingsal og í umfjöllun nefndar. Starfsáætlun gerir ráð fyrir að þingið ljúki störfum 12. júní.