Þegar traustið hverfur
Afsögn Harðar Arnarsonar eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar er orðin að alvarlegu álitamáli um stjórnarhætti, ábyrgð og meðferð opinbers valds. Það sem í fyrstu var kynnt sem ágreiningur um stjórnunaráherslur hefur þróast í opinberar deilur um trúnað og samskipti stjórnar við forstjóra. Um leið vakna spurningar um ábyrgð Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, sem fer með eignarhald ríkisins á Landsvirkjun. Ráðherrann getur ekki látið nægja að vísa til sjálfstæðrar ábyrgðar stjórnar þegar trúverðugleiki stjórnarhátta eins verðmætasta fyrirtækis þjóðarinnar er í húfi.
Hörður hefur lýst því að grundvöllur samstarfs hans og stjórnar hafi brostið. Í viðtali í Sprengisandi á Bylgjunni 25. október sagði hann að stjórnarfundir hefðu verið haldnir án þess að honum væri boðið, honum hefði verið meinað að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hann jafnvel beðinn að víkja þegar rekstrarmál voru rædd. Hann segir slíkt fordæmalaust í sögu Landsvirkjunar.
Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður hafnar þessari lýsingu. Hún segir alla formlega stjórnarfundi hafa verið haldna með þátttöku Harðar, að undanskildum umræðum um málefni hans sjálfs. Hins vegar staðfestir hún að stjórnarmenn hafi í rúmt ár hist yfir hádegisverði fyrir reglulega stjórnarfundi, án forstjórans, til að ræða skipulag og tímastjórnun.
Þessi skýring Brynju er í besta falli ekki trúverðug. Það er ekki heiti fundarins sem skiptir mestu heldur hvað þar fór fram. Ef stjórnarmenn ræddu eingöngu fundarsköp er það annað en ef þeir mótuðu sameiginlega afstöðu til rekstrar, stjórnunar eða framtíðar forstjórans áður en formlegur fundur hófst. Ef hádegisverðarfundirnir voru haldnir vegna þess að stjórnarmenn nutu þess að fá mat sér að kostnaðarlausu, gætu einhverjir haft á því skilning.
Stjórnarfundir án forstjóra
Í 6. grein laga um Landsvirkjun er kveðið á um setu forstjóra á stjórnarfundum, málfrelsi hans og tillögurétt, með heimild stjórnar til undantekninga í einstökum tilvikum. Ákvæðið er ekki formsatriði. Það tryggir að stjórn geti tekið upplýstar ákvarðanir og að forstjóri geti borið ábyrgð á framkvæmd þeirra.
Stjórn þarf vissulega að geta rætt laun, frammistöðu og ráðningarsamband forstjóra án hans þátttöku. En reglubundnir fundir þar sem rekstrarleg afstaða er mótuð án hans geta grafið undan verkaskiptingu stjórnar og framkvæmdastjórnar.
Jón Björn Hákonarson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur gagnrýnt fyrirkomulagið og sagt það ekki samræmast fyrri venjum. Að hans mati hefði verið eðlilegra að ræða slík mál á skipulögðum fundum með vitund forstjórans.
Þótt ekki sé ljóst að um lögbrot sé að ræða er trúnaðarbresturinn sjálfur alvarlegur. Stjórn sem missir traust forstjóra verður að geta útskýrt hvað fór úrskeiðis og hvers vegna ekki tókst að leysa ágreininginn.
Ábyrgð ráðherra verður ekki framseld
Fjármálaráðherra skipar stjórn Landsvirkjunar til eins árs í senn. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og eftirliti, en ráðherra ber pólitíska ábyrgð á því hvernig hann fer með eigendavald ríkisins. Sú ábyrgð hverfur ekki þótt stjórn fyrirtækisins hafi sjálfstætt ákvörðunarvald.
Daði Már hefur lýst áframhaldandi trausti á stjórninni. Á Alþingi 19. október sagði hann að ágreiningurinn snerist um stjórnunaráherslur og að þar með væri öll sagan sögð. Síðari yfirlýsingar Harðar sýna að málið er að minnsta kosti flóknara en sú lýsing gaf til kynna.

Hörður hefur jafnframt sagt að beiðni hans um fund með fjármálaráðuneytinu hafi verið hafnað. Ráðherrann segist ekki sjálfur hafa hafnað fundi. Hér þarf að upplýsa hver tók ákvörðunina og á hvaða forsendum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra orkumála, hefur krafist gagna um fundarhöld stjórnar, samskipti við ráðuneytið og vitneskju ráðherra. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hefur gagnrýnt framgöngu stjórnarinnar og talið fundarhaldið bera keim af einelti. Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Flokks fólksins, hefur jafnvel lýst stjórninni óhæfri. Þetta eru þungar ásakanir frá framkvæmdastjóra eins þriggja stjórnarflokkanna.
Meira í húfi en starfslok forstjóra
Afleiðingarnar geta orðið víðtækar. Landsvirkjun gegnir lykilhlutverki í orkuöryggi, atvinnuuppbyggingu og verðmætasköpun þjóðarinnar. Óvissa um stjórnarhætti getur veikt traust starfsfólks, viðskiptavina og samstarfsaðila.
Í víðara samhengi snýst málið um mörkin milli pólitísks eigendavalds og faglegra stjórnarhátta ríkisfyrirtækja. Ef ráðherra lætur hjá líða að rannsaka alvarlegar ásakanir um starfshætti stjórnar sem hann skipar skapast varhugavert fordæmi. Fjármálaráðherra sem hefur lýst yfir stuðningi við sitjandi stjórn er um leið að axla pólitíska ábyrgð á öllum ákvörðunum stjórnar og starfsháttum sem leiddu til afsagnar Harðar.
Það er hins vegar ekki nóg að stjórn Landsvirkjunar njóti trausts fjármálaráðherra. Hún verður einnig að verðskulda traust almennings. Það traust hefur brostið með svipuðum hætti og traustið milli fráfarandi forstjóra og stjórnar. Á meðan stjórn og fjármálaráðherra upplýsa ekki um hvers vegna samstarfið brast og svara ásökunum um að stjórn og ráðherra hafi brugðist skyldum sínum, verður alltaf tortryggni gagnvart þessum aðilum og það sem verra er, gagnvart Landsvirkjun. Og þá verður afsögn Harðar ekki aðeins persónulegt uppgjör heldur áfellisdómur yfir stjórnarháttum eins mikilvægasta fyrirtækis þjóðarinnar.
