Ræktaði kajak úr sveppum
Bandarískur listamaður hefur komist í heimsmetabók Guinness eftir að hafa róið rúmlega 42 kílómetra yfir sund við Kaliforníu í kajak sem hann ræktaði sjálfur úr sveppum. Ferðin tók tólf klukkustundir og báturinn, sem vó tæplega 49 kíló, stóðst bæði öldugang og strauma. Listamaðurinn viðurkennir þó að sveppakajakinn sé hvorki sérlega hraðskreiður né betri en hefðbundnir plastkajakar.
Listamaðurinn Sam Shoemaker frá Los Angeles hefur um árabil unnið með sveppi og kannað hvort hægt sé að nota þá í stað hefðbundinna byggingarefna. Verkefnið náði nýjum hæðum þegar hann ákvað að rækta heilan kajak úr sveppaþráðum og sigla honum frá Catalina-eyju til meginlands Kaliforníu.
Ferðina fór Soemaker í ágúst 2025, en Guinness birti ítarlega umfjöllun um heimsmetið 10. nóvember síðastliðinn. Shoemaker er nú skráður fyrir lengstu einmenningsferð á báti úr sveppaþráðum, 42,43 kílómetra.
Kajakinn var 3,6 metrar að lengd og ræktaður úr sveppaþráðum tegundarinnar Ganoderma polychromum. Sveppurinn fékk að vaxa í sérstöku móti í sjö vikur og síðan tók við þriggja mánaða undirbúningur, þurrkun og prófanir. Loks var báturinn varinn með skellakki og býflugnavaxi.
Shoemaker lagði af stað frá Catalina-eyju árla morguns og réri í átt að Cabrillo-ströndinni. Ferðin reyndist erfiðari en áætlað hafði verið. Sterkir hafstraumar drógu úr ferðinni og um tíma óttaðist hann að sveppabáturinn myndi brotna í tvennt.
Þrátt fyrir árangurinn viðurkennir hann að sveppakajakinn sé þungur og hægfara og að smíði hans hafi krafist mikillar vinnu og fjármuna. Hann telur hann ekki betri kost en venjulegan plastkajak, en verkefnið sýni möguleika nýrra lífrænna efna.
