Vilja sameiginlega skuldsetningu Evrópusambandsríkja

Petro Sánchez forsætisráðherra Spánar

Þrýstingur á aukna samþættingu ríkisfjármála ríkja Evrópusambandsins [ESB] verður stöðugt meiri. Ríkisstjórn Spánar undir forystu Petro Sánchez forsætisráðherra hefur lagt fram tillögu um ESB taki að láni 850 milljarða evra á ári.

Tillaga Spánar er í umræðuskjali sem sent hefur verið til allra ríkja bandalagsins og vefritið Politico hefur séð. Í frétt vefritsins segir að hugmyndin um sameiginlegar skuldir ESB sé ein sú umdeildasta meðal aðildarríkja. Annars vegar standa útgjaldafrek lönd Suður-Evrópu, eins og Frakkland og Spán og hins vegar blokk ríkja í norðurhluta álfunnar undir forystu Þýskalands og Hollands.

Tillaga Spánar byggir á þeirri forsendur að aukin lántaka ESB leiði til lægri vaxtagreiðslna þar sem skuldsett lönd gætu hagnast á lægri lántökukostnaði Evrópusambandsins borið saman við lánakjör einstakra landa og þannig losað um milljarða til að verja í forgangsverkefni innanlands.

Fyrsta sameiginlega skuldabréfaútgáfa ESB var árið 2021 eftir að samþykkt var að gefa út allt að 750 milljarða evra í styrki og lán til að takast á við efnahagssamdráttinn sem Covid-19-faraldurinn olli.

Politico segir að allt frá evrukrísunni á öðrum áratug aldarinnar hafa Þýskaland og Holland stöðugt verið á móti áformum um að framkvæmdastjórnin gefi varanlega út skuldabréf fyrir hönd landa. Þau leyfðu áætlunina eftir Covid-faraldurinn aðeins vegna þess að hún var einskiptisaðgerð. Lánakjör Þýskalands og Hollands er mun betri en Evrópusambandsins og því gengur það gegn hagsmunum landanna að falla undir sameiginlega lántöku Evrópusambandsins.

Til að vinna Þýskaland og Holland á sitt band hefur Spánn lagt til að bæta upp aukakostnaðinn sem þau myndu verða fyrir vegna sameiginlegra skulda ESB með nýju kerfi, sem kallast Evrópski ríkissjóðurinn [ESF], sem myndi leyfa framkvæmdastjórninni að gefa út skuldir fyrir hönd ESB-ríkja og miðla fjármunum með lánum.

Spánarverjar halda því fram að verulega aukin skuldabréfaútgáfa muni draga úr áhættuálaginu sem fjárfestar krefjast af framkvæmdastjórninni. Þannig lækki fjármagnskostnaður ESB og verði jafnvel lægri en hjá Þýskalandi.

Spánn vill að nýja kerfið taki gildi þegar næsta sjö ára fjárlagarammi sambandsins tekur gildi árið 2028.