Hugmyndir sem ögra valdinu
Hver veit best hvernig við eigum að lifa lífinu? Stjórnmálamaðurinn sem setur lögin, embættismaðurinn sem semur reglugerðirnar eða einstaklingurinn sem þarf að lifa með afleiðingunum? Hver hefur þekkinguna og hver ber ábyrgðina þegar ákvarðanir reynast rangar?
Þessar spurningar eru rauður þráður í skrifum Thomas Sowells, eins áhrifamesta hugsuðar samtímans og jafnframt eins skýrasta málsvara einstaklingsfrelsis og frjáls markaðar. Í meira en hálfa öld hefur Sowell ögrað ríkjandi hugmyndum um hlutverk ríkisins, efnahagslegt réttlæti, menntun, menningu og samfélagsskipan. Hann hefur verið óhræddur við að ganga gegn viðteknum sannindum og gagnrýna þá sem telja sig hafa sérstaka þekkingu til að stjórna lífi annarra.
Í þriðja og síðasta þætti um Thomas Sowell í hlaðvarpinu Alltaf til hægri kynnum við helstu hugmyndir hans, bendum á nokkrar áhrifamiklar bækur sem hann hefur skrifað og greinum þá hugmyndafræðilegu arfleifð sem hann hefur skapað. Við skoðum hvers vegna skrif hans hafa haft áhrif langt út fyrir háskólasamfélagið og hvers vegna þau halda áfram að vekja áhuga, umræður og deilur.
Í bókinni Knowledge and Decisions fjallar Sowell um hvernig þekking er dreifð meðal milljóna einstaklinga og hvers vegna engin miðstjórn getur safnað henni allri saman. Í A Conflict of Visions leitar hann skýringa á því hvers vegna menn hafa gjörólíkar hugmyndir um mannlegt eðli, samfélagið og hlutverk ríkisvaldsins. Við kynnumst einnig gagnrýni hans á menntamenn og sérfræðinga sem vilja móta samfélagið samkvæmt eigin hugmyndum, án þess að þurfa sjálfir að bera kostnaðinn þegar ákvarðanir reynast rangar.
Ein mikilvægasta niðurstaða Sowells er að engar fullkomnar lausnir séu til, aðeins val milli ófullkominna kosta. Góð áform tryggja ekki góðar niðurstöður. Það er ekki nóg að stjórnmálamenn lofi að útrýma fátækt, tryggja öllum húsnæði eða bæta opinbera þjónustu. Það verður að spyrja hvort aðgerðirnar skili raunverulegum árangri, hvaða hvata þær skapa og hverjir beri kostnaðinn.
Hugmyndir Sowells eiga ekki síður erindi við íslenskt samfélag en það bandaríska. Við tengjum þær við umræðu um húsnæðismál, heilbrigðiskerfið, atvinnulífið, opinber útgjöld og sívaxandi regluverk. Hversu oft er gengið út frá því að lausnin á samfélagslegum vanda felist í auknum ríkisafskiptum, án þess að spurt sé hvort stjórnvöld hafi þekkingu eða getu til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt?
Thomas Sowell minnir okkur á að frelsi einstaklingsins er ekki aðeins hagfræðilegt viðfangsefni heldur einnig siðferðileg spurning um rétt fólks til að ráða eigin lífi, nýta hæfileika sína og bera ábyrgð á ákvörðunum sínum.
Frelsi byggist ekki á þeirri trú að einstaklingar séu óskeikulir. Það byggist á viðurkenningu þess að enginn sé óskeikull – ekki heldur þeir sem fara með valdið.
Þetta er kjarni þeirrar hugsunar sem hefur gert Thomas Sowell að einum áhrifamesta talsmanni frjálshyggjunnar á okkar tímum.
Hægt er að hlusta á alla þættina um Thomas Sowell á helstu hlaðvarpsveitum meðal annars hér.
