Sleggjan er týnd og löngu gleymd
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er búinn að týna sleggjunni góðu sem hún ætlaði að nota til að berja niður verðbólgu og vexti. Engu er líkara en hún standi ráðþrota gagnvart stöðu efnahagsmála þar sem há verðbólga og aukið atvinnuleysi fara saman.
Í viðtali við Morgunblaðið 4. mars segir forsætisráðherra að þörf sé á samstilltu átaki til að ná verðbólgu niður, ríkið geti lítið frumkvæði haft í því, en það geti veitt „forsendur, festu og fyrirsjáanleika“. Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra hefði verið falið að eiga í beinum samskiptum við aðila vinnumarkaðarins um mögulegar viðbótaraðgerðir.
„Síðan myndum við hittast aftur einhvern tímann eftir páska til að ræða bæði þá framkomna fjármálaáætlun og slíkar aðgerðir.“
Kristrún varaði við að vænta of mikils. Sem sagt: Sleggjan er týnd og tröllum gefin. Loforð, fyrir kosningar 2024, um lægri verðbólgu og lægri vexti, hafa reynst innantóm. Og forsætisráðherra er vondaufur um árangur á komandi vikum.
Eins og komið hefur fram hér á T24 hefur eymdarvísitalan hækkað hressilega í tíð sitjandi ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Vísitalan var 8,7 stig í upphafi en er komin upp í 12,5 stig.
Eymdarvísitalan (misery index) er samtala árstíðarleiðrétts atvinnuleysis og verðbólgu og sýnir efnahagslega stöðu almennings á hverjum tíma. Þegar verðbólga eða atvinnuleysi eykst – eða bæði í senn – versnar efnahagsleg staða heimila óháð því hvernig aðrir hagvísar líta út. Verðbólga og atvinnuleysi hafa aukist í stjórnartíð ríkisstjórnarinnar frá desember 2024. Verðbólga mælist nú 5,2% borið saman við 4,8% og árstíðarleiðrétt atvinnuleysi er 7,3% sem er veruleg aukning frá desember 20024 þegar það mældist 3,9%.
