Aukin andstaða við ESB-aðild
Andstaða við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist á síðustu mánuðum og hefur ekki mælst meiri í könnunum Gallup frá árinu 2010. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Af þeim sem tóku afstöðu eru 54% andvíg aðild að ESB en 46% hlynnt.
Í frétt á vb.is – vef Viðskiptablaðsins – kemur fram að andstaðan sé mest hjá kjósendum Miðflokksins eða 90%. Um 83% kjósenda Sjálfstæðisflokksins eru andvíg aðild og aðeins 3% eru fylgjandi. Minnstur stuðningur við aðild að ESB er meðal Sjálfstæðismanna. Alls segjast 85% kjósenda Framsóknarflokksins andvíg aðild.
Um 83% stuðningsmanna Samfylkingarinnar vilja ganga til liðs við Evrópusambandið og 78% kjósenda Viðreisnar. Athygli vekur að tæplega helmingur kjósenda Flokks fólksins er aðildarsinnar en flokkurinn hefur hafnað aðild í stefnuskrá sinni.
