Segir eitt á Íslandi en annað í Noregi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir eitt á Íslandi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður við ESB og allt annað í Noregi. Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og blaðamaður, bendir á þessa staðreynd á vefsíðunni stjornmalin.is.

Hjörtur bendir á að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi ítrekað sagt að verði því hafnað að hefja á ný umsóknarferli að Evrópusambandinu í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði verði sú niðurstaða virt:

„Hins vegar eru skilaboðin erlendis ekki endilega þau sömu eins og til dæmis sást í norska dagblaðinu Nationen í gær þar sem haft var eftir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, að ef niðurstaðan yrði nei í þjóðaratkvæðinu þýddi það nei – um stund

„Ef það er nei, þá er það nei um stund,“ hefur Nationen þannig eftir Kristrúnu eða á norsku: „Om det er et nei så er det et nei for en stund.“ Sem sagt tímabundið. Hvers vegna hún sagði ekki einfaldlega að nei þýddi nei án slíks fyrirvara vekur furðu.“