Ríkisstjórnin veikist og Sjálfstæðisflokkurinn styrkist
– Viðreisn missir annan þingmann á einum mánuði. Staða Þorgerðar tvísýn
Ingvar Þóroddsson hefur sagt skilið við Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir ríkisstjórnina hafa svikið loforð í skattamál, um aðhald í ríkisrekstri og uppbyggingu innviða á landsbyggðinni. Þar með hefur þriðji þingmaðurinn yfirgefið þingflokka stjórnarflokkanna á þessu ári. Á sama tíma glímir ríkisstjórnin við erfið mál á Alþingi, vaxandi verðbólgu, háa vexti og ágreining um fjárlög næsta árs. Staða Viðreisnar er sérstaklega viðkvæm eftir að tveir af ellefu þingmönnum flokksins hafa yfirgefið þingflokkinn á aðeins einum mánuði.
Ákvörðun Ingvars Þóroddssonar kom fram í yfirlýsingu í morgun. Hann sagði að fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 og reynsla síðustu kjördæmaviku hefðu sannfært sig um að stefna ríkisstjórnarinnar samræmdist ekki lengur sannfæringu og loforðum fyrir kosningarnar 2024. Hann hyggst starfa í stjórnarandstöðu en styðja einstök mál óháð því hvaðan þau koma.
Ingvar var kjörinn fyrir Viðreisn í Norðausturkjördæmi og hefur gegnt embætti annars varaforseta Alþingis. Hann hefur einnig verið fyrsti varaformaður atvinnuveganefndar og setið í velferðarnefnd síðustu vikur eftir að hafa vikið úr fjárlaganefnd.
Meirihlutinn minnkar úr 36 í 33 þingmenn
Ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins tók við völdum eftir kosningarnar 2024 með 36 þingmenn af 63. Samfylkingin með 15 þingmenn, Viðreisn ellefu og Flokkur fólksins tíu. Stjórnin hafði því góðan og að því er virtist tryggan meirihluta.
Staðan hefur breyst hratt. Guðmundur Ingi Kristinsson yfirgaf Flokk fólksins í apríl og Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar 15. október. Báðir lýstu áfram yfir stuðningi við ríkisstjórnina, þótt Jón hefði fyrirvara um einstök stefnumál.
Með brotthvarfi Ingvars eru nú 33 þingmenn í þingflokkum ríkisstjórnarinnar, 28 í stjórnarandstöðunni og tveir utan þingflokka. Sjálfstæðisflokkurinn hefur jafnframt stækkað í 15 þingmenn og er orðinn jafnstór Samfylkingunni. Viðreisn hefur níu þingmenn, jafnmarga og Flokkur fólksins.
Ríkisstjórnin hefur enn formlegan meirihluta. Ef stuðningur Guðmundar Inga og Jóns Gnarr helst óbreyttur getur hún reitt sig á 35 atkvæði. Svigrúmið hefur þó minnkað og hver einstakur þingmaður stjórnarliðsins fær aukið vægi við afgreiðslu umdeildra mála.
Skattastefnan varð Ingvari að ásteytingarsteini
Ingvar beinir harðastri gagnrýni sinni að efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hann segir Viðreisn hafa lofað því fyrir kosningar að hækka ekki skatta, en nú standi flokkurinn að skattabreytingum sem þrengi að fyrirtækjum og dragi úr fjárfestingum.
Hann nefnir sérstaklega fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%, breytingar á vörugjöldum bifreiða og innleiðingu kílómetragjalds. Að hans mati hefur ríkisstjórnin lagt of mikla áherslu á aukna skattheimtu en ekki sýnt nægilegan árangur við að draga úr útgjöldum og bæta nýtingu opinbers fjármagns.
Ingvar styður markmiðið um hallalausan ríkisrekstur en telur að leiðin að því markmiði skipti höfuðmáli. Hann vill leggja meiri áherslu á verðmætasköpun, fjárfestingar og hagvöxt samhliða aðhaldi í ríkisrekstri.
Þessi gagnrýni er sérstaklega viðkvæm fyrir Viðreisn. Flokkurinn hefur lagt áherslu á frjálslynda efnahagsstefnu, samkeppni og öflugt atvinnulíf.
Landsbyggðarmálin juku á óánægjuna
Ingvar hefur einnig gagnrýnt samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar og ákvarðanir sem hann telur ganga gegn hagsmunum Norðausturkjördæmis. Hann nefnir fækkun ferða landsbyggðastrætó, breytingar á flugsamgöngum til Vopnafjarðar og Þórshafnar og fyrirhugaða breytingu á niðurgreiðslum Loftbrúar.
Sérstaklega gagnrýnir hann að Fjarðarheiðargöng séu ekki á framkvæmdaáætlun samþykktrar samgönguáætlunar, þótt undirbúningur þeirra sé langt kominn. Hann hefur viðurkennt að hafa gert mistök með því að greiða áætluninni atkvæði og beðið Austfirðinga afsökunar.
Ingvar hefur jafnframt lýst andstöðu við hugmyndir um breytingar á vægi atkvæða sem gætu fækkað þingmönnum Norðausturkjördæmis úr tíu í sjö. Þannig tengir hann ákvörðun sína bæði við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hagsmuni kjördæmisins.
Landsvirkjunardeilan eykur álagið
Vistaskiptin koma á sama tíma og ríkisstjórnin glímir við ágreining um málefni Landsvirkjunar. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur sætt gagnrýni vegna upplýsingagjafar um aðdraganda starfsloka Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins.
Ráðherrann hefur viðurkennt ónákvæmni í fyrri ummælum um stjórnarfundi án forstjóra en hafnað því að hafa afvegaleitt Alþingi. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur ákveðið að rannsaka samskipti ráðuneytisins og Landsvirkjunar.
Málið hefur einnig vakið spurningar um traust til stjórnar Landsvirkjunar og framkvæmd eignarhalds ríkisins. Fyrir ríkisstjórnina felst vandinn ekki aðeins í gagnrýni stjórnarandstöðunnar heldur einnig í því að viðvarandi umræða um upplýsingagjöf fjármálaráðherra tekur tíma og athygli frá öðrum verkefnum hennar og grefur undan trúverðugleika ráðherrans.
Verðbólga og háir vextir þrengja að
Staðan í efnahagsmálum gerir stöðu ríkisstjórnarinnar ekki auðveldari. Verðbólga mældist 5,9% í október og meginvextir Seðlabanka Íslands eru 8%. Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum 7. október eftir þrjár vaxtahækkanir fyrr á árinu.
Á sama tíma sýna tölur Hagstofunnar að atvinnuleysi hefur aukist og lausum störfum fækkað verulega. Þessi þróun setur ríkisstjórnina í klemmu. Hún þarf að ná tökum á ríkisfjármálunum án þess að auka óþarflega á samdrátt í atvinnulífinu, en jafnframt tryggja fjármögnun opinberrar þjónustu.
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 verður mikilvæg prófraun. Ríkisstjórnin þarf að ná samstöðu um skatttekjur, útgjöld og hagræðingu, en Ingvar telur að núverandi forgangsröðun gangi gegn því sem hann og Viðreisn lofuðu kjósendum.
Jón Gnarr sakaði forystuna um klíkumyndun
Brotthvarf Ingvars er annað áfallið fyrir þingflokk Viðreisnar á rúmum mánuði. Jón Gnarr gekk úr þingflokknum eftir að hafa gagnrýnt vinnubrögð, ákvarðanatöku og samskipti innan hans. Hann lýsti því að lengi hefði skort skýra forystu og að ákvarðanafælni og klíkumyndun hefðu einkennt starfsemina.
Í Kastljósi sagði Jón að sér hefði fundist forysta flokksins hafa brugðist sér. Hann lýsti aðstæðunum sem óheilbrigðum og taldi sig ekki hafa haft nægileg áhrif á ákvarðanir innan þingflokksins. Hann tók þó fram að honum þætti vænt um fólkið í Viðreisn og hygðist áfram styðja ríkisstjórnina.
Í viðtali við Útvarp Sögu 20. október gekk Jón lengra og beindi ábyrgðinni sérstaklega að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni flokksins. Hann gagnrýndi að ákvarðanir væru teknar áður en þær kæmu til umræðu í þingflokknum og taldi að innri samskiptavandi hefði verið látinn óleystur.
Þorgerður Katrín sagðist hlusta á gagnrýni Jóns en ætlaði ekki að standa í opinberum orðahnippingum við hann. Hún lagði áherslu á að henni þætti vænt um Jón og það hefði verið gott að vinna með honum.
Þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB tapaðist
Erfiðleikar Þorgerðar Katrínar eru ekki bundnar við stöðuna í þingflokknum. Kjósendur höfnuðu 29. ágúst að Ísland tæki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Alls sögðu 52,8% nei en 47,2% já og kjörsókn var 82,6%.
Aðild að Evrópusambandinu hefur verið eitt helsta stefnumál Viðreisnar og var ágreiningu um Evrópumálin helsta ástæða þess að Þorgerður Katrín, sem var varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2005 til 2010, gekk út flokknum.
Niðurstaðan var því pólitískt áfall fyrir Viðreisn og þá ekki síst fyrir Þorgerði Katrínu. Þar með er eitt helsta stefnumál flokksins komið af dagskrá og ekki fyrirsjáanlegt að það verði tekið upp aftur á næstu árum.
Það vekur spurningar um pólitíska stöðu Viðreisnar. Þegar ESB er ekki lengur á dagskrá færist athyglin enn frekar að efnahagsstefnu, skattamálum og ríkisrekstri. Einmitt á þeim sviðum hefur Ingvar nú sakað flokkinn um að hafa fjarlægst eigin kosningaloforð.
Þorgerður Katrín hefur lýst vonbrigðum með ákvörðun Ingvars og bent á að hann hafi samþykkt stjórnarsáttmálann. Hún hafnar því að Viðreisn hafi svikið kjósendur sína og segist ekki eiga von á frekara brotthvarfi þingmanna.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hins vegar staðfest að hún hafi rætt við fleiri þingmenn stjórnarflokkanna.
Þorgerður Katrín stendur frammi fyrir þrefaldri áskorun
Staða Þorgerðar Katrínar hefur breyst verulega frá kosningunum 2024. Þá hafði hún leitt Viðreisn til besta kosningaárangurs flokksins og tryggt honum aðild að ríkisstjórn. Nú hefur þingflokkurinn minnkað úr ellefu þingmönnum í níu, gagnrýni hefur komið fram á forystu hennar og þjóðaratkvæðagreiðsla um eitt helsta baráttumál flokksins hefur tapast. Hún situr undir ásökunum um klíkuskap á sama tíma og varaformaðurinn, Daði Már siglir krappan sjón í fjármálaráðuneytinu.
Hún stendur því frammi fyrir þremur samtengdum verkefnum. Í fyrsta lagi þarf hún að endurheimta traust og samstöðu innan þingflokksins eftir ásakanir um klíkumyndun og óheilbrigð vinnubrögð. Í öðru lagi þarf hún að sýna hvernig Viðreisn ætlar að fylgja eftir eigin efnahagsstefnu í ríkisstjórn þar sem skattahækkanir og útgjaldaáform hafa orðið þingmönnum hennar að ásteytingarsteini. Í þriðja lagi þarf hún að móta pólitíska framtíð flokksins eftir ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þarf á sama tíma að halda stjórnarsamstarfinu saman við afgreiðslu fjárlaga og annarra umdeildra mála. Ríkisstjórnin hefur enn þingmeirihluta, en hann er minni en við stjórnarmyndun og svigrúm til ágreinings hefur þrengst.
