Misbeiting á valdi
Samfylkingin notar samstarfsflokka sína í ríkisstjórn sem gólfmottu og beitir forsætisráðuneytinu í pólitískum tilgangi. Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Samfylkinguna og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra harðlega í umræðum um störf þingsins 15. apríl.
Tómas Þór benti á að blaðamannafundur, þar sem kynnt var „nýjasta útspil Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarmálum þar sem lofað var 16 milljarða útgjöldum ríkisins“, hafi verið boðaður beint úr Stjórnarráðinu, af aðstoðarmanni ráðherra úr netfangi forsætisráðuneytisins:
„Þarna er sjálfu forsætisráðuneytinu beitt í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk. Það er auðvitað ekkert nýtt og við höfum séð það margoft að Samfylkingin gerir bara það sem henni sýnist eftir að hún tók við stjórnartaumunum. En þetta er eitthvað allt annað. Það er einfaldlega, frú forseti, að öllu leyti óboðlegt í lýðræðisríki að beita valdamesta embætti Stjórnarráðsins með þeim hætti sem Kristrún Frostadóttir gerði hér um liðna helgi, enda keppast nú kollegar hennar í ríkisstjórninni við það að bera af sér þessi kosningaloforð, nú síðast í morgun hæstv. fjármálaráðherra í viðtali í Morgunblaðinu.“
Tómas Þór lauk máli sínu með því að segja:
„ En það er ekkert annað en misbeiting á valdi og ólýðræðislegt í alla staði að beita sjálfu forsætisráðuneytinu í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk.“
