Antonin Scalia: Maður textans
Antonin Scalia var einn áhrifamesti hæstaréttardómari Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar og fram á þá 21. Hann var fæddur árið 1936 og var skipaður dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna árið 1986 af Ronald Reagan. Scalia lést 13. febrúar 2016 og voru fréttir af andláti hans fluttar um allan heim. Fáar andlátsfréttir hafa vakið meiri athygli á síðustu árum nema þá fréttir af fráfalli helstu þjóðarleiðtoga. Áhugi fjölmiðla endurspeglaði tvennt: Annars vegar þá miklu virðingu sem Antonin Scalia naut meðal samferðamanna sinna, jafnt andstæðinga sem samherja, fræðimanna í lögum sem leikmanna. Og hins vegar hve stórt hlutverk dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna leika í stjórnskipan landsins.
Hugmyndafræði Scalia lifir áfram í bandarísku réttarkerfi og stjórnmálaumræðu. Ekki er of djúpt í árinni tekið þegar sagt er að fáir dómarar hafi markað jafn skýra stefnu um hlutverk dómstóla og Scalia, og enn færri hafa haft jafn afgerandi áhrif á það hvernig lög eru túlkuð. Meginviðhorfi hans í lögskýringum má lýsa með þeim orðum að hann taldi lögin og sérstaklega þau lög sem talin eru öðrum helgari, stjórnarskrána, segja það sem þau þýða og þýða það sem þau segja. Hvorki meira né minna.
