Leigubremsan sem fækkaði íbúðum um helming
Opinber verðstýring á húsnæðismarkaði hefur alltaf mistekist en margir stjórnmálamenn eru enn sannfærðir um að skynsamlegt sé að hið opinbera ákveði hámarksleiguverð á íbúðum. Verðlagshöft á leigumarkaði eru vísasta leiðin til að eyðileggja húsnæðismarkaðinn eins og íbúar Berlínar fengu að reyna þegar vinstristjórn borgarinnar ákvað að setja þak á húsaleigu árið 2020. Leiguverð lækkaði en framboð íbúða hrundi.
Í grein á vef bresku hugveitunnar Institute of Economic Affairs (IEA) fjallar Rainer Zitelmann um nýja rannsókn á afleiðingum leiguþaksins í Berlín. Rannsóknin staðfestir það sem hagfræðingar hafa varað við áratugum saman: Verðþak á húsaleigu dregur úr framboði og gæðum leiguhúsnæðis.
Vinstristjórn Berlínar innleiddi leiguþak 23. febrúar 2020. Leiga var fryst og leigusölum gert að lækka leigu sem fór yfir lögbundin mörk. Hámarksleiga var mismunandi eftir aldri, gerð og eiginleikum íbúða og var almennt á bilinu 3,92 til 9,80 evrur á fermetra á mánuði, án hita og annars rekstrarkostnaðar.
Leigan lækkaði – framboðið hrundi
Pekka Sagner sýnir í doktorsrannsókn sinni við háskólann í Wuppertal að leiguverð lækkaði um 10,3% í kjölfar aðgerðanna en á sama tíma dróst framboð auglýstra leiguíbúða saman um 52%. Í miðlægum hverfum Berlínar, meðal annars Charlottenburg-Wilmersdorf og Mitte, nam samdrátturinn 60% eða meira.
Þar sem leigan lækkaði mest varð samdráttur í framboði jafnframt mestur. Sérstaklega fækkaði tveggja og þriggja herbergja íbúðum, 50–80 fermetrum að stærð. Afleiðingarnar bitnuðu því ekki síst á pörum, litlum fjölskyldum og efnaminna fólki sem þurftu að finna sér húsnæði.
Leigusalar brugðust einnig við með því að draga úr viðhaldi. Lægri leigutekjur gerðu fjárfestingar í endurbótum erfiðari. Þar sem framboð hafði minnkað verulega sættu leigjendur sig í auknum mæli við íbúðir í lakara ástandi. Margir leigusala tóku íbúðir af leigumarkaði og seldu þær.
Dýrkeypt tilraun
Þýski stjórnlagadómstóllinn felldi leiguþakið úr gildi 15. apríl 2021 þar sem borgaryfirvöld höfðu farið út fyrir lagaheimildir sínar. Leigusalar gátu þá krafist þess að leigjendur greiddu afturvirkt mismuninn á lögbundnu leigunni og þeirri leigu sem upphaflega hafði verið samið um. Í sumum tilvikum námu kröfurnar þúsundum evra.
Zitelmann bendir á að varað hafi verið við þessari hættu frá upphafi. Viðvörunum hafi hins vegar verið ýtt til hliðar.
Seðlabankinn varar við íslensku leigubremsunni
Nú hyggjast íslensk stjórnvöld, undir forystu Ragnars Þórs Ingólfssonar félags- og húsnæðismálaráðherra, lögfesta svokallaða leigubremsu. Þótt útfærslan sé önnur en í Berlín byggir hún á sömu hugmynd um lögbundnar takmarkanir á verðmyndun á leigumarkaði.
Seðlabanki Íslands hefur í umsögn um frumvarpið varað við því að leigubremsan geti dregið úr framboði leiguhúsnæðis, lengt biðlista og rýrt gæði íbúða. Bankinn bendir jafnframt á hættu á að leigusalar bregðist við með styttri leigusamningum. Áhrifin gætu þannig orðið önnur en stjórnvöld stefna að með auknu húsnæðisöryggi.
Viðvörun Seðlabankans er í samræmi við þá efnahagslegu hvata sem rannsóknin í Berlín dregur fram. Þótt ekki sé hægt að yfirfæra niðurstöður hennar beint á Ísland vekja þær spurningar um langtímaáhrif verðtakmarkana á framboð, viðhald og fjárfestingar.
Reynslan frá Berlín minnir á að lægra leiguverð samkvæmt lögum tryggir ekki að fleiri finni húsnæði. Líklegra er að leiguíbúðum fækki og gæðin versni.
