Endursýning á pólitísku leikriti

Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár eins og fjallað er um í nýjasta þætti Alltaf til hægri. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk Evrópusambandsins – að Evrópusambandið myndi aðlaga sig að sérþörfum Íslendinga. Forystumenn vinstri stjórnarinnar vissu betur og þá ekki síst utanríkisráðherra en á upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins sagði meðal annars:

„Hvor aðili um sig, umsóknarríkið og ESB, hafa sín samningsmarkmið og af hálfu umsóknarríkis snúa þau vanalega fyrst og fremst að því að fá að njóta ákveðins sveigjanleika við að taka upp lög og stefnumið ESB.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var sem nefnarmaður í utanríkismálanefnd árið 2009 sannfærð um að engar líkur væru á því að Ísland gæti fengið varanlegar undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins.

Hægt er að hlusta á alla þætti Alltaf til hægri á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Nýjasti þátturinn er hér.