Samfylking aldrei veikari í Reykjavík

Samfylkingin í Reykjavík fékk sína verstu útreið frá upphafi í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðinn laugardag eða aðeins 18,3% atkvæða. Traust vígi jafnaðarmanna í Hafnarfirði hrundi.

Aðeins einu sinni frá 2006, þegar Samfylkingin bauð fyrst fram undir eigin nafni, hefur fylgi flokksins í Reykjavík farið undir 20% en það var í kosningunum 2010. Eins og sést á meðfylgjandi mynd má Samfylkingin muna fífil sinn fegurri í höfuðborginni. Reykjavíkurlistinn, sem Samfylkingin stóð að með Framsóknarflokki og Vinstri grænum, fékk 53% atkvæða árið 2002. Í þeim sex kosningum sem Samfylkingin hefur verið með framboðslista hefur meðalfylgi flokksins verið um 24%. Mesta hylli naut flokkurinn árið 2014 eða tæp 32%

Niðurstaðan á laugardag var 5,5 prósentustigum undir meðaltali og 13,6 prósentustigum frá mesta fylginu.

Úrslitin í höfuðborginni eru óneitanlega áfall fyrir Samfylkinguna og sérstaklega fyrir formanninn, Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, sem beitti sér mjög í kosningabaráttunni.

Á sama tíma og Samfylkingin hefur aldrei staðið veikar í höfuðborginni þá hrundi flokkurinn í Hafnarfirði þar sem flokkurinn hefur staðið styrkum fótum. Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar, var oddviti framboðsins í Hafnarfirði, þar sem hann var eitt sinn bæjarstjóri áður en hann sneri sér að landsmálum.

Sé hægt að lýsa niðurstöðu kosninga sem afhroði þá á það við um Samfylkinguna í Hafnarfirði. Flokkurinn fékk aðeins 17,8% sem er þrisvar sinnum minna en 2006 þegar flokkurinn naut stuðnings 56% kjósenda. Alþýðuflokkurinn naut víðtæks stuðnings í Hafnarfirði fyrir stofnun Samfylkingarinnar.

Úrslit kosninganna benda til þess að gamalt og traust vígi jafnaðarmanna sé fallið.