Kapítalismi: Það eina sem virkar

Sagan sýnir glögglega að eignarréttur og kapítalismi eru forsendur þess að samfélög blómstri. Þetta eru skilaboð John Stossels, eins þekktasta fjölmiðlamanns Bandaríkjanna, í nýju myndbandi. Stossel á að baki áratuga starf sem sjónvarpsfréttamaður og hefur fengið 19 Emmy-verðlaun. Frá 2019 hefur hann haldið úti sjálfstæðri sjónvarpsrás á netinu; StosselTV.

Stossel er yfirlýstur frjálshyggjumaður og endurspeglast hugmyndafræðin í efnistökum hans, þar sem hann stingur á ýmsum kýlum ríkisrekstrar, ríkisafskipta og sósíalisma.

„Skiptum kuldalegri harðneskju einstaklingshyggjunnar út fyrir hlýju sameignarstefnunnar!“ segir Zohran Mamdani, sósíalíski borgarstjóri New York. Stossel segir að þetta hljómi vel:

„Engir gráðugir kapítalistar sem hamstra auð. Fólk deilir með sér. Það er draumur sósíalista.“

En sama hvað Mamdani eða aðrir góðhjartaðir stjórnmála- og fræðimenn segja þá sýnir reynslan að það eina sem raunverulega bætir líf fólks er einkaeign og kapítalismi.

Hægt er að horfa á myndbandið hér.