Háskólabáknið þenst út
Háskólaráð Háskóla Íslands [HÍ] telur að fjárveiting ríkissjóðs til skólans ætti að vera sex milljörðum hærri á þessu ári til að hann standi jafnfætis háskólum á Norðurlöndum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi ráðsins í síðustu viku.
HÍ hefur lengi barmað sér yfir „fjársvelti“ þrátt fyrir að ríkið hafi stöðugt aukið fjárveitingar til skólans á undanförnum árum. Aðrar tekjur skólans hafa á sama tíma hækkað verulega.
Samkvæmt ársreikningi HÍ nam framlag ríkisins árið 2024 alls 24,3 milljörðum króna. Þetta er liðlega 3,6 milljörðum krónum hærri fjárhæð á föstu verðlagi en árið 2018. Á sama tíma hækkaði launakostnaður um 3,4 milljarða og nam alls 25,2 milljörðum. Starfsmönnum fjölgaði um 416 og voru 1.875 talsins árið 2024. Þar af fjölgaði stöðugildum í stjórnsýslu og stoðþjónustu um 109 í alls 629.
Um 66% heildartekna HÍ koma frá ríkinu en alls hafði skólinn tæplega 36,9 milljarða til ráðstöfunar. Þannig námu framlög og gjafir frá öðrum en ríkissjóði um 7,1 milljarði 2024 sem er hækkun um 5,2 milljarða (á föstu verðlagi) frá 2018. Á verðlagi 2024 námu heildartekjur HÍ árið 2018 um 29,8 milljörðum. Raunhækkun tekna á milli þessara ára nam því um 7,1 milljarði sem er svipuð fjárhæð og launa- og starfsmannakostnaður Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Gríðarleg fjölgun starfsmanna HÍ, og þá sérstaklega í stjórnsýslu, bendir ekki til að skólinn þjáist af fjársvelti en auðvitað lætur Silja Bára Ómarsdóttir háskólarektor sig dreyma um enn frekari útþenslu „háskólabáknsins“ á kostnað skattgreiðenda, sem eiga fáa vini innan veggja HÍ.
