Að gefast upp á Ingu
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, hefur verið seinþreyttur til vandræða í samskiptum sínum við aðra þingmenn. Þótt hann þyki ekki sérlega sterkur stjórnmálamaður hefur hann áunnið sér virðingu meðal annarra þingmanna, ekki síst í öðrum flokkum, fyrir að leggja sig fram um að eiga góð samskipti við alla. Það koma því öllum sem hafa kynnst Guðmundi Inga og störfum hans á þingi þegar hann tilkynnti um úrsögn úr Flokki fólksins og bar við trúnaðarbresti.
Fram til þessa hefur Guðmundur Ingi ekki upplýst um hvaða trúnaðarbrest sé að ræða en augljóst er að hann beinist að Ingu Sæland, sem hefur stjórnað Flokki fólksins líkt og um einkafyrirtæki sé að ræða. Guðmundur Ingi hefur fram undir það síðasta verið traustur liðsmaður Ingu og staðið með henni gegnum þykkt og þunnt. Hann hefur verið varaformaður flokksins frá 2016, var þingflokksmaður frá 2018 til 2015 þegar hann settist í stól mennta- og barnamálaráðherra. Hann sat ekki lengi sem ráðherra en hann fór í veikindaleyfi í desember síðastliðnum, sem sagt var tímabundið, til að gangast undir hjartaaðgerð.
Guðmundur Ingi tók ekki aftur við ráðherraembætti þegar hann sneri aftur til starfa á Alþingi. Trúnaðarbresturinn virðist tengjast þessu, þ.e. að hann hafi talið sig hafa loforð frá formanni flokksins um að hann gæti sest aftur í ráðuneyti menntamála þegar hann hefði náð heilsu.
Inga Sæland, sem samkvæmt könnun Maskínu er sá ráðherra sem kjósendur telja að hafi staðið sig verst í embætti, hefur ekki verið þekkt fyrir að standa við bakið á þingmönnum sínum. Því hefur Guðmundur Ingi fengið að kynnast og því gefist upp á samstarfinu við Ingu, sem kannast ekki við neinn trúnaðarbrest.
