Stýrir gervigreindin stjórnmálamönnum?

Borgarfulltrúar New York hafa að undanförnu haft miklar áhyggjur af gervigreind. Borgarstjórnin hefur meðal annars haldið sérstakar yfirheyrslur yfir fulltrúum stærstu gervigreindarfyrirtækja heims til að kanna hvernig hægt sé að vernda borgarana gegn hættum tækninnar.

Á sama tíma virðast sumir borgarfulltrúanna ekki geta hugsað sér að svara fjölmiðlum án aðstoðar gervigreindar.

Bandaríska stjórnmálavikublaðið og vefmiðillinn City & State New York greindi frá því að blaðamenn hennar hefðu leitað til 29 borgarfulltrúa eftir afstöðu þeirra til breytinga á skipulagsreglum sem eiga að flýta uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Svör bárust frá 18 þeirra eða skrifstofum þeirra.

Blaðið ákvað að kanna hvort svörin væru samin með gervigreind. Niðurstaða sjálfvirkrar greiningar var að sjö svör bæru merki um notkun gervigreindar, að öllu leyti eða að hluta. Þrjú þeirra talin samin af gervigreind frá upphafi til enda.

Þegar blaðamenn spurðu borgarfulltrúana út í niðurstöðurnar viðurkenndu sumir þeirra að hafa notað gervigreind við samningu eða lagfæringu svara. Aðrir sögðust aðeins nota tæknina til að leiðrétta málfar eða kanna staðreyndir. Enn aðrir höfnuðu því að gervigreind hefði verið notuð.

Einn borgarfulltrúi, Frank Morano, sagðist stundum nota gervigreind við skrifleg svör, rétt eins og hann nýtti sér aðstoð starfsfólks og önnur hjálpartæki. Hann lagði áherslu á að skoðanirnar væru hans eigin og hann hefði samþykkt orðalagið áður en svarið var sent.

Þannig standa málin í borgarstjórn New York: Kjörnir fulltrúar fjalla um hvernig eigi að tryggja að gervigreind taki ekki ákvarðanir í stað manna, en sumir þeirra nota hana sjálfir til að koma eigin afstöðu og hugmyndum á framfæri.

Áður fyrr þurftu stjórnmálamenn að hafa skoðanir og finna orð til að lýsa þeim. Nú virðist nóg að hafa skoðun á því að gervigreind eigi ekki að hugsa fyrir fólk og fá síðan gervigreindina til að koma þeirri skoðun á framfæri!

Næsta skref gæti verið að kjósendur láti gervigreind lesa yfirlýsingarnar, meta trúverðugleika þeirra og ákveða hverja skuli kjósa. Þá verður loksins hægt að halda kosningar án þess að nokkur þurfi að hugsa sjálfur.