Gervigreindin sér um að kvarta en embættismaðurinn þarf að lesa

Bresk sveitarfélög og opinberar stofnanir glíma við nýjan og óvæntan fylgifisk gervigreindarbyltingarinnar. Borgararnir eru farnir að nota gervigreind til að skrifa kvartanir, kærur og upplýsingabeiðnir sem eru svo langar og flóknar að embættismenn ráða vart við að lesa þær. Í einu tilviki barst sveitarfélagi kvörtun sem var um 200 blaðsíður. Það sem tekur gervigreindina nokkrar sekúndur að skrifa getur tekið embættismanninn marga klukkutíma að lesa.

Breska blaðið The Guardian greindi frá því á sunnudag að sveitarfélög, dómstólar, skólar og skrifstofur þingmanna væru að drukkna í erindum sem almenningur lætur gervigreind skrifa fyrir sig. Fyrirbærið hefur fengið heitið AI clog, eða gervigreindarstífla.

Deborah Evans, framkvæmdastjóri samtaka lögfræðinga sveitarfélaga, segir að áður hafi dæmigerð kvörtun verið um tvær blaðsíður. Nú séu erindin oft tífalt lengri og hún viti um eina kvörtun sem náði um 200 blaðsíðum.

Kvartanirnar geta snúist um hversdagsleg mál, svo sem sektir fyrir ólöglegar bifreiðastöður, sorphirðu eða skipulagsákvarðanir. Gervigreindin er hins vegar óspör á lagatilvísanir, dómafordæmi og formlegar röksemdir, jafnvel þegar lögin eða dómafordæmin eiga ekki við eða eru einfaldlega uppspuni.

Starfsmaður á skrifstofu þingmanns Verkamannaflokksins segir um helming tölvupóstanna sem þangað berast nú bera merki gervigreindar. Vinnan hafi aukist verulega, enda þurfi starfsfólkið sjálft að lesa erindin, skilja þau og svara.

Breska persónuverndar- og upplýsingastofnunin ICO hefur þegar gefið út sérstakar leiðbeiningar um hvernig bregðast eigi við slíkum erindum. Þar kemur meðal annars fram að upplýsingabeiðni verði ekki ógild aðeins vegna þess að gervigreind hafi skrifað hana, jafnvel þótt hún innihaldi rangar lagatilvísanir.

Sum sveitarfélög íhuga nú að nota gervigreind til að lesa og draga saman kvartanirnar. Önnur vilja takmarka lengd erinda eða nota stöðluð eyðublöð.

Ekki er ólíklegt að innan skamms verði til hringrás skrifræðis með aðstoð gervigreindar. Gervigreind borgarans skrifar 200 blaðsíðna kvörtun og gervigreind embættismannsins dregur hana saman í þrjár línur. Síðan getur gervigreind borgarans skrifað 300 blaðsíðna kæru vegna svarsins.