Velta gagnavera jókst um nær 190% á milli ára
Gríðarlegur vöxtur í starfsemi gagnavera vekur athygli í nýjum tölum Hagstofu Íslands um veltu atvinnugreina í júlí og ágúst. Velta í gagnavinnslu, hýsingu og tengdri upplýsingaþjónustu jókst um 189% frá sama tímabili í fyrra. Á sama tíma jókst velta í málmframleiðslu um 41% en samdráttur varð í sjávarútvegi.
Gagnaver eru í hópi þeirra atvinnugreina sem vaxa hraðast hér á landi samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Velta í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu, þar sem gagnavinnsla og hýsing vega þungt, var nær þrefalt meiri í júlí og ágúst en á sama tímabili árið 2025.
Vöxturinn sker sig verulega úr í íslensku atvinnulífi og er langt umfram það sem mælist í öðrum greinum tækni- og hugverkaiðnaðar. Heildarvelta í tækni- og hugverkaiðnaði, að lyfjaframleiðslu undanskilinni, nam 111 milljörðum króna og jókst um 11%. Í hugbúnaðargerð var aukningin hins vegar aðeins 1% og í meðal- og hátækniframleiðslu dróst velta saman um 1%.
Málmframleiðsla jókst um 41%
Mikil aukning varð einnig í málmframleiðslu. Veltan fór úr tæpum 54 milljörðum króna í rúma 76 milljarða, sem jafngildir 41% vexti. Hagstofan bendir á að heimsmarkaðsverð á áli hafi verið mun hærra en ári áður, auk þess sem útflutt magn jókst lítillega.
Í ferðaþjónustu jókst velta um rúm 7% og nam 252 milljörðum króna. Mest var aukningin í farþegaflutningum á landi, tæplega 25%, en velta í flugfarþegaflutningum jókst um 11%. Í rekstri gististaða var 10% vöxtur þrátt fyrir litlar breytingar á fjölda gistinátta.
Velta í smásöluverslun jókst um rúm 7%, meðal annars vegna 16% aukningar hjá stórmörkuðum og matvöruverslunum. Í fasteignastarfsemi var tæplega 10% vöxtur en í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð tæplega 3%.
Í sjávarútvegi og fiskeldi varð hins vegar samdráttur í heildarveltu þrátt fyrir aukna veltu í fiskeldi.
Samkvæmt Hagstofunni jókst velta umfram verðbólgu í rúmlega helmingi atvinnugreina. Verðbólga mældist 5,4% á samanburðartímabilinu.
