Villigötur valdsins
Almenna bókafélagið hefur gefið út bókina Villigötur valdsins – Til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun – eftir Óla Björn Kárason. Bókin er ádeila á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur vegvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar hugmyndafræði ríkishyggjunnar sem nýtur velvildar í öllum stjórnmálaflokkum. Of mörgum finnst þægilegra að setja hugmyndafræðina ofan í skúffu og telja sjálfum sér trú um að hægt sé að leysa hvers manns vanda á grunni ríkishyggju.
Í Villigötum valdsins hvetur Óli Björn hægri menn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang – með áherslu á sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins. Hann heldur því fram að baráttan fyrir opnu samfélagi og rétti fólks til orðs og æðis verði ekki háð með því að setja hugsjónir til hliðar og ræða einungis tæknilegar útfærslur. Ríkisvaldið sé ekki og geti aldrei orðið almáttugt. Óli Björn færir rök fyrir því að lifandi og opið samfélag verði ekki „hannað“ af stjórnmála- og embættismönnum. Tilgangur ríkisvaldsins sé ekki að endurskapa mannlegt eðli heldur að tryggja að hver og einn fái að lifa lífinu á sínum eigin forsendum – fái að vera eins og hann er – án þess að valda öðrum skaða.
Nýjasti þáttur Alltaf til hægri er helgaður Villigötum valdsins þar sem Óli Björn gluggar í bókakafla. Hægt er að hlusta á þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum, meðal annars hér.
Villigötur valdsins fæst í helstu bókabúðum og í netsölu Almenna bókafélagsins sem er þægileg og einföld leið til að verða sér úti um eintak.
