Grýla’ekki neitt við því fékk gert
Hagyrðingar hafa hæfileika til að leika sér að fréttum og margar snjallar vísur og limrur varpa skýrara ljósi á atburði samtímans en langar fréttaskýringar eða flóknar skýringar sérfræðinga og álitsgjafa. Einn skemmtilegari dálkur sem birtist í íslenskum fjölmiðlum er Vísnahornið í Morgunblaðinu. Halldór heitinn Blöndal sá um hornið í mörg ár en sonur hans Pétur Blöndal hefur tekið við.
Eðlilega hefur úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar, varaformanns og þingmanns úr Flokki fólksins, orðið hagyrðingum efniviður.
Fimmtudaginn 16. apríl birtust í Vísnahorninu meðal annars þrjár vísur um úrsögnina.
Magnúsi Halldórssyni:
Nú okkar bíður algjör neyð
og eilíft basl í skólunum.
Svo verður gamla Grýla reið,
en gefst ekki’upp á rólunum.
Friðrik Steingrímssyni í Mývatnssveit:
Gaurinn á flokkslínur gekk þvert
Grýla’ekki neitt við því fékk gert.
Var alveg að springa
út af Guðmundi Inga
Sæland, en sagði þó ekkert.
Pétur Stefánsson:
Sannfæringu sinni er trúr,
sést nú einn á brokki.
Hlaupinn er Guðmundur Ingi úr
Ingu Sælands flokki.
