Eymdarvísitalan hækkað hressilega í tíð ríkisstjórnarinnar

Eymdarvísitalan hefur hækkað um 3,8 stig eða 44% frá því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum í desember 2024. Vísitalan var 8,7 stig þegar samsteypustjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var mynduð en er komin upp í 12,5 stig.

Eymdarvísitalan (misery index) er samtala árstíðarleiðrétts atvinnuleysis og verðbólgu og sýnir efnahagslega stöðu almennings á hverjum tíma. Þegar verðbólga eða atvinnuleysi eykst – eða bæði í senn – versnar efnahagsleg staða heimila óháð því hvernig aðrir hagvísar líta út. Verðbólga og atvinnuleysi hafa aukist í stjórnartíð ríkisstjórnarinnar. Verðbólga mælist nú 5,2% borið saman við 4,8% og atvinnuleysi er 7,3% sem er veruleg aukning frá desember 20024 þegar það mældist 3,9%.

Eins og komið hefur fram hér á T24 setti Arthur Okun, einn þekktasti hagfræðingur Bandaríkjanna á síðustu öld, vísitöluna fram á sjöunda áratugnum. Okun, sem var meðal annars efnahagsráðgjafi Lyndons B. Johnsons Bandaríkjaforseta, vildi búa til mælikvarða sem almenningur gæti skilið auðveldlega og um leið nýst í pólitískri og samfélagslegri umræðu sem væri ekki einokuð af hagfræðingum. Samspil atvinnuleysis og verðbólgu gefur skýrari vísbendingar um raunverulegt ástand en hvor stærð fyrir sig. Að baki eymdarvísitölunni er sú hugmyndafræði að hagstjórn eigi fyrst og fremst að þjóna fólki, ekki jafnvægislíkönum eða fjárlagareglum.

Eymdarvísitala er einföld en ekki gallalaus og hafa margir hagfræðingar sett fram endurbætta útgáfu þar sem meðal annars er tekið tillit til vaxta og hagvaxtar á mann. En kostur vísitölunnar liggur einmitt í einfaldleikanum. Hún minnir á að hagkerfi sem lítur vel út á pappír getur samt verið eymdarhagkerfi fyrir almenning.