Óskilgreint umboð og framsal fullveldis

Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst hefur verið kynnt sem atkvæðagreiðsla um það hvort hefja eigi að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Látið er að því liggja að engar skuldbindingar séu fólgnar í því að hefjast handa við aðildarviðræður – aðeins sé verið að kanna hvað sé í boði. Þess vegna sé það skynsamlegt af kjósendum að veita ríkisstjórninni umboð til að ganga til samninga um aðild Íslands að ríkjabandalagi!

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland vill að þjóðin veiti þeim umboð til að hefja viðræður án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði.

Ef ætlunin er að ná árangri er ekki gengið til samninga án þess að hafa sett ákveðin markmið. Enginn ábyrgur samningamaður leggur af stað án þess að vita hvaða niðurstöðu hann getur sætt sig við og hverri hann verður að hafna.

En Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og skynsamlegt að hefja samningaviðræður án þess að nokkur viti hvert ferðinni sé heitið.

Þessi nálgun Valkyrjanna stenst hvorki pólitíska né stjórnsýslulega skoðun. Samningsmarkmið eru ekki einhver minniháttar formsatriði sem má ákveða síðar eða eftir því hvernig mál þróast. Þau eru forsenda þess að hægt sé að semja af festu og trúverðugleika. Aðeins þannig geta kjósendur áttað sig á því hvaða hagsmunum ríkisstjórnin telur að ekki sé hægt að semja um eða gera málamiðlun. Á þeim grunni verður kjósendum kleift að meta hvort veita eigi það umboð sem eftir er leitað.

Hvaða markmiðum ætlar ríkisstjórnin að ná fram í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið? Hvaða hagsmuni á að verja og verða ófrávíkjanlegir? Við hvaða niðurstöðu verður ekki unað? Og hvað gerist ef þeim markmiðum verður ekki náð?

Hvaða áhrif hefur það á samningsstöðu Íslands þegar forysta Evrópusambandsins áttar sig endanlega á því að ekki er meirihluti á Alþingi fyrir aðild Íslands og að ríkisstjórnarflokkarnir ganga ekki í takt?

Telur ríkisstjórnin full og óskoruð yfirráð Íslands yfir fiskimiðunum vera ófrávíkjanlegt skilyrði? Verður viðræðum slitið ef sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins reynist ekki samrýmast þeirri afstöðu? Hvað með aðrar auðlindir? Hvaða breytingar leggur ríkisstjórnin til að gerðar verði á stjórnarskrá til að hægt sé að ganga inn í ríkjabandalagið? Er framsal frekara löggjafarvalds ásættanlegt og ef svo er hvaða framsal? Hvernig hyggst ríkisstjórnin standa vörð um fullveldi Íslands ef þessum markmiðum verður ekki náð?

Hvaða áhrif hefur hugsanleg aðild að Evrópusambandinu á samskipti við mikilvægar viðskiptaþjóðir sem standa utan sambandsins, s.s. Kína, Indland og Bandaríkin? Eitt er ljóst að fríverslunarsamningurinn við Kína fellur úr gildi. Hefur ríkisstjórnin lagt mat á hvort og þá með hvaða hætti Evrópusambandsaðild breyti samskiptum Íslands og Bandaríkjanna, ekki síst í varnar- og öryggismálum. Stenst varnarsamningurinn við Bandaríkin aðild Íslands að ríkjabandalaginu?

Um þetta og fleira er fjallað í nýjasta þætti Alltaf til hægri. Hægt er að nálgast þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Nýjasti þátturinn er hér á Spotify.