Eru Kristrún og Daði Már hætt að tala saman?

Í viðtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins 27. febrúar boðaði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra aðgerðir gegn þrálátri verðbólgu á næstu dögum. Um leið viðurkenndi hann að árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum sé undir væntingum.

Eitthvað hafa skilaboð fjármálaráðherra um aðgerðir á næstu dögum skoðlast til því Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í samtalið við Morgunblaðið 4. mars að hugsanlegar verði kynntar aðgerðir í efnahagsmálum “einhvern tímann eftir páska”.

En kannski eru fjármálaráðherra og forsætisráðherra hættir að tala saman eða skilja ekki hvort annað, þrátt fyrir að sitja saman a.m.k. tvisvar í viku á fundum ríkisstjórnar.