Endurheimtum stöðu okkar í heiminum

Sem utanríkisráðherra ber Marco Rubio ábyrgð á að framfylgja utanríkisstefnu Donalds Trumps Bandaríkjanna með trúverðugum hætti og á traustum grunni. En hann nálgast verkefnið út frá eigin sannfæringu. Frá því hann tók sæti í öldungadeildinni árið 2011 hefur hann verið haukur í öryggis- og varnarmálum, gagnrýnt einræðisríki á borð við Kína, Rússland, Íran, Kúbu og Venesúela og lagt áherslu á fælingarmátt öflugra hervarna. Hann sver sig í ætt við Reagan í trú sinni á styrk lýðræðisríkja og mikilvægi samstöðu þeirra gagnvart alræðisöflum.

Þessi sýn mótaði framgöngu hans á öryggisráðstefnunni í München fyrir nokkrum dögum þar sem hann lagði áherslu á sameiginlega hagsmuni og söguleg tengsl Evrópu og Bandaríkjanna. Rubio undirstrikaði að veik Evrópa geri Bandaríkin veikari. Markmiðið Bandaríkjanna sé ekki að eiga undirgefna bandamenn heldur öfluga samstarfsaðila sem geti varið sig sjálfir og þannig styrkt sameiginlegar varnir og fælingarmátt.

„Við leitumst ekki við að sundra, heldur endurlífga gamla vináttu og endurnýja mestu siðmenningu í sögu mannkyns,“ sagði utanríkisráðherrann sem vill endurvakið bandalag sem er ekki lamað af aðgerðaleysi vegna ótta – ótta við loftslagsbreytingar, ótta við stríð, ótta við tækni. „Við viljum bandalag sem þýtur djarflega inn í framtíðina,“ sagði Rubio.

Nýjasti þáttur Alltaf til hægri fjallar um ræðuna og hægt er að hlusta á hann í öllum helstu hlaðvarpsveitum meðal annars hér.