Dýrara að loka en opna
Breskir skattgreiðendur hafa varið tugum milljóna punda í tolla- og landamærastöðvar sem áttu að auðvelda vörueftirlit eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu en hafa aldrei verið starfræktar eins og til stóð. Í einu tilviki kostaði fjórar milljónir punda að útbúa landamærastöð, en sex milljónir til viðbótar að loka henni. Annars staðar var varið 28 milljónum punda í stöð sem er enn aðeins tún.
Breska dagblaðið The Guardian greindi frá því á sunnudag að nýjar upplýsingar frá breska skattinum, HMRC, sýndu að fimm af sjö fyrirhuguðum toll- og landamærastöðvum innanlands hefðu aldrei náð að hefja starfsemi vegna sífelldra stjórnvalda á fyrirhuguðu eftirliti með vörum frá Evrópusambandinu.
Eitt skýrasta dæmið er í Ebbsfleet, skammt frá London. Þar var bílastæði við Eurostar-járnbrautarstöð breytt í aðstöðu fyrir vörubifreiðar. Framkvæmdirnar kostuðu fjórar milljónir punda, en þegar ákveðið var að hætta við starfsemina kostaði sex milljónir að loka henni.
Í Birmingham var varið ellefu milljónum punda í framkvæmdir og síðan sex milljónum til að loka stöðinni.
En sérstakt met virðist hafa verið slegið við þorpið Guston, nærri Dover. Þar keyptu stjórnvöld land fyrir 21 milljón punda og vörðu sjö milljónum til viðbótar í undirbúningsframkvæmdir, meðal annars fornleifarannsóknir. Tollstöðin var aldrei reist og svæðið er enn tún.
Breska fjármálaráðuneytið tilkynnti raunar árið 2022 að hætt hefði verið við uppbygginguna við Dover vegna þess að fyrirliggjandi aðstaða væri nægjanleg. Ákvörðunin var þá kynnt sem sparnaður upp á um 120 milljónir punda í framtíðarkostnaði!
Og ekki eru öll vandamálin bundin við stöðvar sem aldrei opnuðu. Í Portsmouth var reist fullbúin skoðunarstöð fyrir 23 milljónir punda. Hún var hönnuð til að afgreiða um 80 vöruflutningavagna á dag, en samkvæmt upplýsingum hafnarstjórans eru að meðaltali aðeins tveir skoðaðir daglega.
Nú er rætt um hvort breyta þurfi húsnæðinu til annarra nota eða jafnvel rífa það. Hafnarstjórinn segir að breytingarnar geti kostað næstum jafnmikið og niðurrif.
