Bannað að eiga dróna í Peking

Íbúar Peking hafa frest til sunnudags til að losa sig við dróna sem þeir eiga, hvort sem þeir hafa notað þá nýlega eða látið þá safna ryki í geymslunni. Samkvæmt nýjum reglum verður ekki aðeins bannað að fljúga drónum yfir kínversku höfuðborginni, heldur einnig að eiga þá eða geyma innan borgarmarkanna. Yfirvöld hafa meira að segja komið á sérstöku endurkaupakerfi til að auðvelda borgurunum að losna við tækin.

Reglurnar taka gildi sunnudaginn 15. nóvember. Bannið tekur einnig til lykilíhluta dróna og óheimilt verður að flytja slíkan búnað inn í borgina án sérstakrar heimildar. Undanþágur eru meðal annars fyrir tiltekna starfsemi á sviði almannavarna, rannsókna, kennslu og framleiðslu.

Borgaryfirvöld hafa útbúið sérstakt kerfi til að hjálpa almenningi að uppfylla reglurnar. Eigendur geta selt dróna sína til viðurkenndra endurkaupaaðila, afhent þá til förgunar eða sent þá með pósti út fyrir borgarmörkin.

Fyrir dróna sem áður höfðu verið skráðir hjá lögreglu greiða yfirvöld sérstakan styrk. Frá 1. til 14. nóvember nemur hann 15% af endurkaupsverði, að hámarki 1.500 júan, eða 100 júönum ef tækið er afhent til förgunar. Sá sem sendir drónann með viðurkenndri póstþjónustu út fyrir borgarmörkin getur fengið sendingarkostnaðinn felldan niður.

Borgaryfirvöld höfðu áður bannað sölu dróna og takmarkað flug þeirra verulega. Nýja ákvæðið gengur lengra með því að banna almenningi að hafa tækin í sinni vörslu, jafnvel þótt þau fari aldrei á loft.

Stjórnvöld segja að öryggissjónarmið liggi að baki. Í júní varð banvænt flugslys í borginni þegar lítil flugvél rakst á háhýsi og einn maður lést. Reglurnar eru liður í víðtækari aðgerðum til að tryggja öryggi í lofthelgi höfuðborgarinnar. AP News