Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins

Þegar Davíð Oddsson steig fyrst inn á svið stjórnmálanna var flestum ljóst að þar færi ungur maður með skýra pólitíska sannfæringu sem væri óhræddur við að takast á við pólitíska andstæðinga jafnt og glíma við samherja. Húmorinn var vopn sem hann kunni að fara betur með en flestir aðrir. Nýjasti þáttur Alltaf til hægri er tileinkaður Davíð Oddssyni sem lést 1. mars síðastliðinn aðeins 78 ára.

Davíð var ekki stjórnmálamaður sem flaut með straumnum – hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins. Davíð treysti einstaklingum og var tortrygginn gagnvart miðstýringu og opinberu valdi.

Í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í október 2005 í tilefni af ákvörðun hans að yfirgefa svið stjórnmálanna sagði Davíð að það sem væri efst í huga væru þær breytingar sem hafa orðið á andrúmi og umhverfi í þjóðfélaginu:

„Vald stjórnmálamanna hefur verið takmarkað mjög verulega og þeir geta nú einbeitt sér að sínum verkahring; að setja þjóðfélaginu leikreglur. Þá hefur svigrúm fólks og fyrirtækja breyst og aukist svo um munar, þótt á okkur dynji endalaust reglugerðarfargan frá Evrópu.“

En hann varaði við því að um leið og stjórnmálamennirnir hyrfu af vettvangi ryðjist fyrirtækin inn í tómarúmið og þegar leikreglurnar vanti þá megi reikna með því að menn olnbogi sig áfram af töluverðri hörku. Davíð hélt áfram:

„Þess vegna mega stjórnmálamenn ekki heykjast á því að setja viðskiptalífinu heilbrigðar leikreglur þannig að enginn einn, tveir eða þrír aðilar geti náð yfirburðastöðu og drepið allt annað í dróma.“

Þessi varnaðarorð enduróma innbyggða varfærni Davíðs gagnvart viðskiptalífinu.

Hægt er að hlusta á þennan hlaðvarðsþátt á öllum helstu hlaðvarpsveitum m.a. hér á Spotify.