Vill selja 20% hlut í Landsvirkjun og skrá fleiri ríkisfyrirtæki á markað
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, vill að fimmtungshlutur í Landsvirkjun verði seldur og fyrirtækið skráð á hlutabréfamarkað. Hann telur jafnframt ástæðu til að skoða skráningu minnihluta í öðrum opinberum innviðafyrirtækjum, svo sem Isavia og Landsneti. Með þessu megi efla íslenskan hlutabréfamarkað, fjölga fjárfestingarkostum og laða erlenda fjárfesta til landsins.
Þetta kemur fram í viðtali við Ólaf í nýjum hlaðvarpsþætti Innherja á Vísi, sem Hörður Ægisson greinir frá í frétt á miðlinum. Í þættinum lýsir Ólafur verulegum áhyggjum af stöðu íslenska hlutabréfamarkaðarins, þar sem viðskipti hafa dregist mikið saman undanfarin ár. Hægt er að hlusta á Innherja meðal annars hér.
„Við erum að komast niður í þriðju deild í ensku,“ segir Ólafur um stöðu markaðarins.
Landsvirkjun, Isavia og Landsnet á markað
Ólafur telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað geti orðið mikilvægur liður í að efla íslenskan fjármagnsmarkað og auka áhuga erlendra fjárfesta. Hann leggur til að ríkið selji 20% hlut í orkufyrirtækinu en haldi áfram yfirráðum yfir því.
„Búa til markað með fjölbreyttum kostum og setja einfaldlega tuttugu prósent í Landsvirkjun á markað,“ segir Ólafur í viðtalinu.
Hann bendir jafnframt á að skoða mætti sambærilega leið fyrir önnur opinber innviðafyrirtæki, meðal annars Isavia og Landsnet. Með skráningu slíkra fyrirtækja yrði fjárfestingarkostum fjölgað og íslenski hlutabréfamarkaðurinn endurspeglaði betur fjölbreytni og sérstöðu íslensks atvinnulífs.
Ólafur leggur áherslu á að ekki sé verið að leggja til sölu á öllum hlut ríkisins í Landsvirkjun. „Við erum ekki að tala um að einkavæða Landsvirkjun í heild sinni.“
Hann bendir á að Norðmenn hafi farið þá leið að skrá stórt orkufyrirtæki á markað án þess að ríkið afsalaði sér yfirráðum. Að hans mati gæti sambærileg leið hér á landi aukið áhuga erlendra fjárfesta, sem hafa nú takmarkaða möguleika á að fjárfesta í fyrirtækjum sem tengjast mikilvægum innviðum íslenska hagkerfisins.
Ólafur viðurkennir þó að óvíst sé hvort pólitískur vilji sé fyrir slíkum breytingum.
Viðskipti á hlutabréfamarkaði dregist verulega saman
Áhyggjur Ólafs af íslenska hlutabréfamarkaðnum byggjast meðal annars á miklum samdrætti í viðskiptum.
Samkvæmt tölum Seðlabankans, sem Ólafur vísar til í hlaðvarpsþættinum, nemur velta á hlutabréfamarkaðnum nú um 20% af heildarmarkaðsvirði skráðra fyrirtækja. Árið 2020 var hlutfallið um 60%. Leita þurfi aftur til ársins 2012 til að finna sambærilega stöðu.
Þetta þýðir að velta miðað við markaðsvirði er komin niður í um þriðjung þess sem hún var árið 2020.
Ólafur segir ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af þróuninni. Hann rekur hana meðal annars til hækkunar vaxta undanfarin ár, sem hafi dregið úr áhuga fjárfesta á hlutabréfum og beint fjármagni í áhættuminni fjárfestingarkosti.
Hann bendir einnig á hversu fábreyttur íslenski hlutabréfamarkaðurinn sé og að lífeyrissjóðir fari með stóran hluta eignarhalds skráðra fyrirtækja. Að hans mati þurfi að fjölga áhugaverðum fjárfestingarkostum og auka þátttöku erlendra fjárfesta til að styrkja markaðinn til lengri tíma.
Skráning stórra opinberra innviðafyrirtækja gæti, að mati Ólafs, orðið þáttur í slíkri uppbyggingu. Hún gæti aukið fjölbreytni, dregið úr sveiflum og gert íslenska markaðinn að áhugaverðari kosti fyrir innlenda og erlenda fjárfesta.
