Bandaríkjamenn styðja ekki yfirtöku á Grænlandi

Hugmynd Donalds Trump forseta um að leggja undir sig Grænland gæti verið sú óvinsælasta í bandarískri stjórnmálasögu. Þessu heldur tímaritið Reason fram og vitnar meðal annars í könnun Reuters/Ipsos sem birt var á miðvikudag en þar kemur fram að aðeins fjögur prósent Bandaríkjamanna styðja hugmyndina um að leggja undir sig Grænland með hervaldi. Hugmyndin er vinsælli meðal repúblikana en demókrata og óháðra kjósenda.

En jafnvel þótt hervaldi verði ekki beitt – t.d. að Bandaríkin nái samningi um að „kaupa“ Grænland eða yfirtaka án valdbeitingar, þá hefur Trump hverfandi stuðning meðal samlanda sinna. Sama könnun leiddi í ljós að aðeins 17 prósent Bandaríkjamanna styðja þá viðleitni.

Könnun Quinnipiac-háskólans sem einnig var birt á miðvikudag sýnir álíka niðurstöður. Um 86 prósent svarenda voru andvíg hernaðaryfirtöku á Grænlandi og aðeins 9 prósent studdu hana.

Reason er tímarit frjálshyggjumanna í Bandaríkjunum.