Pútín herðir tökin
Rússnesk stjórnvöld hafa tekið enn eitt skrefið í viðleitni sinni til að hafa stjórn á upplýsingum og hugmyndum sem berast almenningi. Samkvæmt nýjum lagaákvæðum má vísa útlendingum úr landi fyrir framleiðslu eða dreifingu kvikmynda og sjónvarpsefnis sem sögð eru innihalda falin skilaboð sem hafa áhrif á undirmeðvitund fólks.
Breytingarnar tóku gildi þriðjudaginn 3. nóvember og fela í sér verulega útvíkkun á heimildum rússneskra yfirvalda til að vísa erlendum ríkisborgurum úr landi.
Fjöldi brotaflokka sem geta leitt til brottvísunar hefur aukist úr 22 í 45. Þar á meðal eru þátttaka í óleyfilegum mótmælum, tiltekin brot gegn reglum um fjölmiðlun og óhlýðni við lögreglu.
Sérstaka athygli vekur ákvæði laganna þar sem bannað að framleiða eða dreifa sjónvarpsþáttum, kvikmyndum og tilteknu stafrænu efni sem talin eru að innihaldi falin innskot sem hafa áhrif á undirmeðvitund fólks eða geta skaðað heilsu almennings.
Ákvæðið um slíkt efni var áður í lögunum, en breytingin bætir við sérstakri refsingu fyrir erlenda ríkisborgara og ríkisfangslausa einstaklinga. Brjóti þeir gegn ákvæðinu skal þeim vísað úr landi og hald lagt á viðkomandi efni og búnað.
Breytingin er hluti af hertum útlendingalögum sem voru undirrituð 4. ágúst en tóku gildi þremur mánuðum síðar. Engin staðfest dæmi liggja fyrir um að útlendingi hafi þegar verið vísað úr landi vegna þessara tilteknu kvikmyndaákvæða. Gagnrýnendur halda því fram með með gildirtöku laganna sé stigið enn eitt skrefið í átt að aukinni ritskoðun í Rússlandi.
