Hver verður næsti forseti Bandaríkjanna?
Þótt tvö ár séu þar til Bandaríkjamenn kjósa næsta forseta er baráttan um tilnefndingu beggja stóru stjórnmálaflokkanna þegar hafin bak við tjöldin. Fjölmargir demókratar undirbúa hugsanlegt framboð eftir stórsigur flokksins í þingkosningunum, en meðal repúblikana vakna spurningar um hvort halda eigi áfram á þeirri braut sem Donald Trump hefur mótað eða leita aftur til hefðbundnari íhaldsstefnu og hófsamari framkomu. Enn er óvíst hverjir bjóða sig fram og líklegt að bæði ný nöfn bætist við og aðrir hverfi úr umræðunni áður en fyrstu atkvæði verða greidd í forvali flokkanna árið 2028.
Næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum fara fram 7. nóvember 2028. Donald Trump getur ekki samkvæmt 22. viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar sóst eftir endurkjöri og því verður nýr forseti kjörinn, hvort sem repúblikanar halda Hvíta húsinu eða demókratar taka við stjórnartaumunum.
Nýafstaðnar þingkosningar hafa aukið áhugann á því hverjir muni leiða flokkana í næstu forsetakosningum. Demókratar hafa náð meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og fjöldi stjórnmálamanna innan flokksins lítur nú til ársins 2028. Hjá repúblikönum hafa úrslitin vakið umræður um framtíðarstefnu flokksins, ekki síst sambandið við Trump og þá stjórnmálahreyfingu sem hann hefur byggt upp.
Tvær ólíkar spurningar um framtíð flokkanna
Hjá demókrötum snýst umræðan meðal annars um hvort flokkurinn eigi að færa sig nær pólitískri miðju eða halda áfram að þróa stefnu sína í átt að róttækri vinstristefnu. Nýkjörnir ríkisstjórar undir fána Demókrataflokksins, sem náðu kjöri í ríkjum þar sem repúblikanar eru sterkir, benda á reynslu sína af því að höfða til kjósenda þvert á flokkslínur. Róttækari stjórnmálamenn leggja hins vegar áherslu á að flokkurinn þurfi að berjast af meiri krafti fyrir efnahagslegum umbótum og gegn áhrifum auðmanna og stórfyrirtækja.
Hjá repúblikönum er spurningin ekki aðeins hver taki við af Trump, heldur hvers konar flokkur taki við eftir hann. Sumir vilja varðveita þjóðernislega efnahagsstefnu hans, harða afstöðu í innflytjendamálum og átakasækna stjórnmálabaráttu. Aðrir telja að flokkurinn þurfi að endurheimta traust kjósenda með hefðbundnari áherslum á takmarkað ríkisvald, ríkisfjármál, frjáls viðskipti og meiri festu.
Þessi átök eru þó ekki einföld skipting milli fylgismanna og andstæðinga Trump. Margir repúblikanar styðja hluta stefnu hans en eru ósammála öðrum þáttum, svo sem tollastefnu. Forvalið 2028 getur því orðið vettvangur víðtækari umræðu um stefnu og sjálfsmynd Repúblikanaflokksins.

Hugsanlegir frambjóðendur demókrata
Gavin Newsom – ríkisstjóri Kaliforníu. Newsom hefur verið áberandi í andstöðu við Trump og byggt upp víðtækt tengsla- og fjáröflunarnet. Hann hefur meðal annars lagt áherslu á loftslagsmál, félagsleg réttindi og stefnu Kaliforníu í efnahags- og atvinnumálum.
Kamala Harris – fyrrverandi varaforseti. Harris tapaði forsetakosningunum 2024 fyrir Trump en hefur ekki útilokað að sækjast aftur eftir embættinu. Hún nýtur þess að vera einn þekktasti stjórnmálamaður Bandaríkjanna en hugsanlegt framboð hennar myndi óhjákvæmilega kalla fram umræður um ástæður ósigursins 2024.
Josh Shapiro – ríkisstjóri Pennsylvaníu. Shapiro hefur lagt áherslu á efnahagsmál, stjórnsýslu og samstarf við kjósendur utan hefðbundins kjarnafylgis demókrata. Hann hefur jafnframt reynslu af kosningabaráttu í Pennsylvaníu, einu mikilvægasta barátturíki Bandaríkjanna. Shapiro er af gyðingaættum sem er bæði styrkleiki hans og veikleiki í ljósi þess hve andúð á Ísrael og gyðingum hefur breiðst út meðal demókrata.
Andy Beshear – ríkisstjóri Kentucky. Beshear hefur unnið ríkisstjórakosningar í ríki þar sem repúblikanar hafa mikinn styrk og leggur áherslu á atvinnumál, menntun og samstarf þvert á flokkslínur. Hann er meðal þeirra demókrata sem telja að flokkurinn þurfi að ná betur til kjósenda í hefðbundnum vígjum repúblikana.
JB Pritzker – ríkisstjóri Illinois. Pritzker er auðugur kaupsýslumaður sem hefur verið áberandi í andstöðu við Trump og ríkisstjórn hans. Hann hefur lagt áherslu á félagslega þjónustu, réttindi launafólks og aukið hlutverk stjórnvalda í ýmsum samfélagsmálum.
Pete Buttigieg – fyrrverandi samgönguráðherra. Buttigieg bauð sig fram í forvali demókrata árið 2020 og gegndi síðar embætti samgönguráðherra í ríkisstjórn Joe Biden. Hann er þekktur fyrir skýran og yfirvegaðan málflutning og hefur lagt áherslu á samgöngur, atvinnuuppbyggingu og stjórnsýslu.
Alexandria Ocasio-Cortez – þingmaður New York. Ocasio-Cortez er einn þekktasti fulltrúi vinstri arms Demókrataflokksins og hefur lagt áherslu á aukna skattlagningu tekjuhárra, félagslega þjónustu og loftslagsmál. Hugsanlegt framboð hennar gæti gert hugmyndafræðilegan ágreining innan flokksins sýnilegri.
Jon Ossoff – öldungadeildarþingmaður Georgíu. Ossoff hefur vakið aukna athygli eftir endurkjör sitt í Georgíu í þingkosningunum 2026. Hann hefur lagt áherslu á efnahagsleg tækifæri, stjórnsýslu og baráttu gegn spillingu og er nefndur meðal þeirra sem gætu komið sterkari inn í umræðuna eftir nýafstaðnar kosningar.
Mark Kelly – öldungadeildarþingmaður Arizona. Kelly er fyrrverandi geimfari og hefur lagt áherslu á landamæraöryggi, varnarmál og efnahagsleg málefni. Hann hefur byggt upp pólitíska stöðu í Arizona, þar sem fylgi flokkanna hefur verið tiltölulega jafnt í mörgum kosningum.

Hugsanlegir frambjóðendur repúblikana
JD Vance – varaforseti Bandaríkjanna. Vance hefur lengi verið talinn sjálfsagður arftaki MAGA og Trumps. Hann hefur lagt áherslu á innflytjendamál og bandarískan iðnað og hefur verið gagnrýninn á hefðbundna utanríkisstefnu flokksins. Afhroð Repúblikana í kosningunum hefur hins vegar veikt stöðu hans.
Marco Rubio – utanríkisráðherra. Rubio bauð sig fram í forvali Repúblikana árið 2016 og á rætur í hefðbundinni íhaldsstefnu flokksins. Hann hefur þó stutt meginstefnu Trump í ríkisstjórninni og því gæti hugsanlegt framboð hans byggst á samspili þeirrar reynslu og eldri hugmyndafræðilegra áherslna hans.
Ron DeSantis – ríkisstjóri Flórída. DeSantis bauð sig fram gegn Trump í forvali Repúblikana árið 2024 og hefur verið áberandi í mennta-, innflytjenda- og menningarmálum. Hann hefur jafnframt lagt áherslu á skattamál, stjórnsýslu og rekstur Flórída og gæti nýtt þá reynslu í hugsanlegu nýju framboði.
Nikki Haley – fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu. Haley var helsti keppinautur Trump undir lok forvalsins 2024 og hefur lagt áherslu á hefðbundna íhaldsstefnu, varfærni í ríkisfjármálum og virkara hlutverk Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Hún hefur einnig gagnrýnt ýmsa þætti í framkomu Trump, þótt hún hafi stutt hann í forsetakosningunum.
Ted Cruz – öldungadeildarþingmaður Texas. Cruz bauð sig fram í forvali Repúblikana árið 2016 og hefur lengi verið áberandi meðal félagslega og efnahagslega íhaldssamra kjósenda. Hann hefur á síðustu misserum gagnrýnt einangrunarsinnaðar áherslur innan hægri vængsins, sérstaklega í utanríkismálum.
Glenn Youngkin – fyrrverandi ríkisstjóri Virginíu. Youngkin kom úr viðskiptalífinu og vann ríkisstjórakosningarnar í Virginíu árið 2021 með áherslu á menntamál, efnahagsmál og réttindi foreldra. Hann hefur verið nefndur sem hugsanlegur frambjóðandi sem gæti lagt meiri áherslu á hefðbundna íhaldsstefnu og hófsamari framkomu.
Brian Kemp – ríkisstjóri Georgíu. Kemp hefur lagt áherslu á skattalækkanir, atvinnuuppbyggingu og hefðbundna stefnu Repúblikana í efnahagsmálum. Hann hefur jafnframt átt í opinberum ágreiningi við Trump, meðal annars vegna forsetakosninganna 2020, en haldið áfram að starfa innan flokksins.
Rand Paul – öldungadeildarþingmaður Kentucky. Paul er fulltrúi frjálshyggju innan Repúblikanaflokksins og leggur áherslu á takmarkað ríkisvald, lægri ríkisútgjöld og persónufrelsi. Hann hefur gagnrýnt bæði tollastefnu og ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnar Trump þegar hann telur þær ganga gegn þessum grundvallarsjónarmiðum.
Fyrstu forvalskosningarnar í janúar 2028
Demókratar hafa ákveðið að fyrstu forvalskosningarnar fari fram í Suður-Karólínu 22. janúar 2028. Þar á eftir koma Nevada 1. febrúar, New Hampshire 8. febrúar, Nýja-Mexíkó 15. febrúar, Michigan 22. febrúar og Virginía 29. febrúar. Með þessari röð vill flokkurinn meðal annars tryggja að kjósendur af ólíkum uppruna og úr mismunandi landshlutum hafi áhrif á val forsetaframbjóðanda strax í upphafi.
Repúblikanar hafa ákveðið að halda sig við hefðbundnari röð þar sem Iowa verður fyrst, síðan New Hampshire, Nevada og Suður-Karólína. Nákvæmar dagsetningar fyrstu kosninga Repúblikana hafa ekki verið endanlega ákveðnar. Fyrstu forvalskosningarnar verða því í janúar 2028, en kosningabaráttan mun hefjast mun fyrr.
Vert er að hafa í huga að forval er með mismunandi hætti eftir ríkjum. Sums staðar fara fram hefðbundnar forkosningar (primaries), þar sem kjósendur greiða atkvæði í kjörklefum, en annars staðar flokksþing eða kjörfundir (caucuses), þar sem flokksmenn koma saman og velja frambjóðendur. Reglur um þátttöku eru einnig ólíkar. Í sumum ríkjum mega aðeins skráðir flokksmenn kjósa, en annars staðar geta óflokksbundnir kjósendur tekið þátt.
Mörg nöfn – en aðeins tveir frambjóðendur að lokum
Þessi upptalning er hvorki endanlegur framboðslisti né spá um hverjir verði tilnefndir. Enginn þessara stjórnmálamanna hefur með ótvíræðum hætti boðið sig fram en þeir eru flestir að þreifa fyrir sér áður en ákvörðun er tekin. Næstu mánuðir munu skera úr um hverjir geta aflað nægjanlegs fjár og byggt upp kosningavél sem er nauðsynleg til að eiga raunhæft erindi í forvalið.
Reynslan sýnir að frambjóðendur sem eru áberandi tveimur árum fyrir forsetakosningar þurfa ekki að verða þeir sem kjósendur flokkanna velja að lokum. Nýir stjórnmálamenn geta komið fram, aðrir ákveðið að sitja hjá og einhverjir hætt áður en fyrstu atkvæði verða greidd. Fyrstu skoðanakannanir segja því meira um hverja kjósendur kannast við og hverja ekki.
Það sem þegar er ljóst er að forsetakosningarnar 2028 munu ekki aðeins snúast um tvo einstaklinga heldur einnig um framtíðarstefnu beggja stóru stjórnmálaflokkanna. Demókratar þurfa að ákveða hvernig þeir vilja nýta sigur sinn í þingkosningunum og Repúblikanar þurfa að takast á við spurninguna um hvað taki við eftir Trump. Sú umræða er rétt að byrja.
