Ef það hreyfist, skattleggðu það!
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hafði einstakt lag á að lýsa efnahagsstefnu stjórnvalda í fáum orðum. Ein frægasta háðsglósa hans var á þessa leið:
„Ef það hreyfist, skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu reglur um það. Ef það hættir að hreyfast, settu það á ríkisstyrk.“
Þetta var auðvitað sagt í háði. En stundum er erfitt að átta sig á því hvort íslensk stjórnvöld hafi skilið brandarann.
Í Sprengisandi Bylgjunnar skýrði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra út hvernig ríkisstjórnin ætlar að nálgast álagningu sérstaks innviðagjalds sem á að leggja á ferðamenn sem heimsækja Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Gjaldið verður 4.500 krónur á háannatíma og 3.000 krónur utan hans, gangi áformin eftir. Ef ferðamenn taka gjaldtökunni illa verður hún endurskoðuð, sagði ráðherrann.
Þetta er stórkostleg hugmyndafræði. Fyrst er ákveðið að leggja á nýjan skatt. Síðan er fylgst með því hvort þeir sem eiga að greiða hann séu ánægðir. Ef þeir reynast óánægðir er skatturinn endurskoðaður. Maður veltir ósjálfrátt fyrir sér hvort þetta sé ný almenn regla í skattamálum. Verður tekjuskatturinn endurskoðaður ef launafólk tekur honum illa? Hvað með virðisaukaskattinn? Tryggingagjaldið? Bifreiðagjöldin?
Eða er sérstakur réttur til óánægju aðeins ætlaður erlendum ferðamönnum?

Velgengni kallar á skattheimtu
Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum orðið ein mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Framtakssamir einstaklingar hafa byggt upp fyrirtæki, fjárfest í hótelum, veitingastöðum, afþreyingu og þjónustu. Þeir hafa skapað störf og tekið áhættu, oft án þess að vita hvort viðskiptavinirnir myndu nokkurn tíma skila sér.
Og ferðamennirnir komu.
Þeir gistu á hótelum, borðuðu á veitingastöðum, keyptu þjónustu og greiddu skatta með einum eða öðrum hætti. Þeir skiluðu gjaldeyristekjum og studdu við atvinnulíf víða um land. En nú hefur ríkisvaldið uppgötvað að eitthvað vantar: Sérstakt auðlindagjald sem er áhugamál Viðreisnar.
Ráðherrann benti á að sjávarútvegurinn greiddi auðlindagjald og því væri eðlilegt að ferðaþjónustan legði sitt af mörkum. Hún sagðist jafnvel skilja að útgerðinni hefði þótt ósanngjarnt að greiða slík gjöld ein.
Þarna opnast alveg ný sýn á skattalegt réttlæti. Ef ein atvinnugrein greiðir sérstakan skatt er lausnin ekki endilega að velta fyrir sér hvort skatturinn sé réttlætanlegur. Nei, það getur verið réttlætismál að finna aðrar atvinnugreinar til að skattleggja líka.
Þetta mætti kalla skattalegt jafnrétti. Og möguleikarnir eru nánast ótakmarkaðir.
Hver á náttúruna?
Ráðherrann leggur áherslu á að ferðamenn eigi að greiða fyrir aðgang að náttúruperlum í eigu þjóðarinnar. En þarna vaknar áhugaverð spurning.
Hver á Gullfoss? Hver á Geysi? Hver á Þingvelli? Þjóðin, segir ráðherrann sem lítur þannig á að þjóðin hafi falið stjórnvöldum að ákveða hverjir fái að skoða eignir hennar án greiðslu og hverjir þurfi að borga. Sá sem hefur skattalega heimilisfesti á Íslandi fær aðgang án endurgjalds. Sá sem býr erlendis þarf að greiða.
Sveitarfélög hafa látið kanna hvort þessi mismunun samrýmist EES-samningnum. Ráðherrann telur svo vera og vísar til lögfræðiálita. Það verður fróðlegt að fylgjast með niðurstöðunni. Á meðan er að minnsta kosti tryggt að lögfræðingar fái sinn skerf af nýju tekjuöfluninni.
Þegar skatturinn hittir markið
Ráðherrann vill að ferðamenn dreifist betur um landið, en segir jafnframt að markmiðið sé ekki að fækka þeim á fjölsóttustu stöðunum. Þvert á móti vonast hún eftir áframhaldandi fjölgun ferðamanna.
Hún vill því leggja gjald á heimsóknir á vinsælustu staðina, en vonast til að gjaldið dragi ekki úr aðsókninni. Og ef það gerir það verður gjaldtakan endurskoðuð.
Þarna er komið að því sem hagfræðingar kalla áhrif verðs á eftirspurn. Þegar verð á vöru eða þjónustu hækkar getur eftirspurn minnkað. Það er ekki pólitísk skoðun heldur ein af grundvallarlögmálum hagfræðinnar. Hversu mikil áhrifin verða er síðan önnur spurning.
Þegar upp er staðið ræður ferðamaðurinn sjálfur hvort hann telur heimsóknina peninganna virði. Hann getur greitt gjaldið, valið annan áfangastað eða jafnvel annað land. Og þá getur ráðherrann endurskoðað skattinn.
Næst kemur ríkisstyrkurinn
Það vantar því aðeins síðasta kaflann í efnahagskenningu Reagans.
Ef gjaldtakan leiðir til minni umsvifa hjá ferðaþjónustufyrirtækjum, færri starfa eða samdráttar í tekjum sveitarfélaga, gæti komið að því að stjórnvöld telji nauðsynlegt að grípa til sérstakra stuðningsaðgerða.
Þá verður búið að fara allan hringinn.
Fyrst er atvinnugreinin skattlögð vegna þess að hún gengur vel. Síðan eru settar reglur um framkvæmd gjaldtökunnar. Ef umsvifin dragast saman er hugsanlega gripið til ríkisstyrkja til að örva starfsemina. Auðvitað hefur enginn boðað slíka styrki. En það er einmitt fegurðin við háðsglósu Reagans: Hún lýsir ekki aðeins einstökum ákvörðunum heldur hugsunarhætti.
Gullfoss mun áfram falla, Geysir gjósa og Þingvellir bera vitni um sögu þjóðarinnar. Ferðamenn munu væntanlega áfram vilja heimsækja þessa staði.
En eitt hefur breyst. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að náttúruperlurnar þurfi sérstakan tekjustofn. Og ef skattlagningin fækkar ferðamönnum verður stefnan endurskoðuð.
Það er gott að vita að stjórnvöld eru reiðubúin að endurskoða vandamál sem þau hafa sjálf búið til.
