Háværasta kona heims var kvefuð þegar hún setti heimsmetið
Brenda Willison, bæjarhrópari í Newmarket á Englandi, hefur verið útnefnd háværasta kona heims samkvæmt heimsmetabók Guinness. Hún náði að kalla svo hátt að hljóðstyrkurinn mældist 105,9 desíbel, sem jafnast á við hávaða frá öflugum snjóblásara eða bílflautu. En Brenda er ekki alveg ánægð með árangurinn. Hún var nefnilega kvefuð þegar hún setti metið og telur sig geta gert mun betur.
Metið var sett 9. september, en Guinness greindi frá því 4. nóvember að Brenda hefði hlotið tvær viðurkenningar, annars vegar fyrir háværasta hróp konu og hins vegar sem háværasti kvenkyns bæjarhrópari í heimi.
Hún hrópaði orðið oyez, sem er hefðbundið kall bæjarhrópara og merkir í lauslegri þýðingu „Heyrið, heyrið!“.
Brenda hefur starfað sem bæjarhrópari frá árinu 1987 og er ein þeirra sem halda á lofti ævagamalli breskri hefð, þegar fréttir, tilkynningar og ákvarðanir yfirvalda voru kynntar almenningi með háværum hrópum á götum úti.
Saga þess hvernig hún hóf störf er ekki síður skemmtileg.
Á sínum tíma stjórnaði hún tveimur kaffihúsum í almenningsgarði í Peterborough. Milli þeirra voru um 2,4 kílómetrar. Þegar auglýst var eftir bæjarhrópara sendi dóttir hennar inn umsókn fyrir hennar hönd.
Í umsókninni kom fram að ef móðirin stæði fyrir utan annað kaffihúsið og kallaði „franskar kartöflur“ heyrðist það alla leið að hinu kaffihúsinu.
Það þótti nægileg sönnun á hæfileikunum.
Síðan hefur Brenda meðal annars komið fram við opinberar hátíðir í Buckingham-höll og á fjölmörgum samkomum í Bretlandi og erlendis.
Viðurkenningin frá Guinness var því hápunktur næstum fjögurra áratuga starfsferils.
En Brenda telur sig eiga meira inni. Hún sagði við Guinness að kvefið hefði háð henni í mettilrauninni og hún væri sannfærð um að geta kallað enn hærra.
Dóttir hennar virðist hins vegar ekki hafa haft miklar áhyggjur af því hvort móðirin gæti hrópað nógu hátt. Hún hafði lengi verið þekkt fyrir að vera hávær.
