Pólitískt skipbrot og uppgjör bandarískra hægrimanna
Repúblikanar hafa beðið einn mesta ósigur í sögu þingkosninga í Bandaríkjunum. Demókratar náðu meirihluta í báðum deildum þingsins og unnu sigra í ríkjum sem hafa um áratugaskeið verið vígi repúblikana. Stríðið við Íran, hækkandi framfærslukostnaður, óvinsælar ákvarðanir Donalds Trumps og mistök innan Repúblikanaflokksins skýra að stórum hluta úrslitin. En ósigurinn vekur jafnframt áleitnar spurningar um framtíð bandarískrar hægristefnu og þeirrar stjórnmálahreyfingar sem Trump hefur mótað undanfarinn áratug.
Þegar George W. Bush missti meirihluta repúblikana á Bandaríkjaþingi árið 2006 lýsti hann úrslitunum sem myndarlegri ráðningu. Tuttugu árum síðar er sú lýsing allt of væg að mati ritstjórnar National Review. Í leiðara tímaritsins, sem ber yfirskriftina Armageddon – lokaorustan – er ósigri repúblikana líkt við kjarnorkuslysið í Tsjernobyl. Samanburðurinn er ekki aðeins ætlaður til að lýsa umfangi ósigursins heldur einnig þeirri pólitísku eyðileggingu sem hann skilur eftir sig.
Demókratar unnu ekki aðeins meirihluta í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni heldur náðu einnig yfirhöndinni í ríkjum þar sem repúblikanar hafa lengi haft öruggt fylgi. Í Texas, Suður-Karólínu og Kansas, þar sem Trump hafði sigrað með 24, 18 og 16 prósentustiga mun í forsetakosningunum tveimur árum áður, sneru kjósendur baki við repúblikönum. Í Kansas hafði demókrati ekki verið kjörinn í öldungadeildina í 94 ár. Repúblikanar töpuðu jafnframt mikilvægum kosningum í Maine og Michigan.
Ósigurinn náði jafnt til stjórnmálamanna sem höfðu byggt feril sinn á stuðningi við Trump og þeirra sem höfðu verið áhrifamiklir innan flokksins áður en hann tók völdin. Mike Lawler í New York, Greg Abbott ríkisstjóri Texas og Susan Collins öldungadeildarþingmaður Maine urðu öll fórnarlömb. Kosningaúrslitin verða því ekki skýrð með óheppilegu framboði í einu eða tveimur ríkjum. Fylgishrun Repúblikanaflokksins var víðtækt.
Stríðið sem braut kosningaloforðið
Michael Brendan Dougherty, sem skrifar í The Free Press undir fyrirsögninni Trump Lost Because He Betrayed America First, telur að ein ákvörðun forsetans hafi öðrum fremur ráðið úrslitum: Stríðið við Íran. Trump hafi ekki aðeins hafið stríð sem meirihluti Bandaríkjamanna var andvígur heldur gert sig persónulega ábyrgan fyrir afleiðingunum. Hann hafi hvorki leitað samþykkis þingsins né lagt fram sannfærandi rök fyrir hernaðinum gagnvart bandarískum almenningi.
Dougherty minnir á að Trump hafi byggt pólitískan feril sinn meðal annars andstöðu við þá utanríkisstefnu sem fylgt var í forsetatíð George W. Bush. Kjósendum var lofað að Bandaríkin myndu ekki dragast inn í ný og kostnaðarsöm stríð í Mið-Austurlöndum. Í kosningabaráttunni hafði Trump lýst því yfir að hann ætlaði ekki að hefja stríð heldur binda enda á þau. Þessi afstaða var ein af forsendum þess að kjósendur sem höfðu snúið baki við Repúblikanaflokknum eftir Íraksstríðið sneru aftur.
Hugmyndin um America First, eða Bandaríkin í fyrsta sæti, átti að fela í sér að bandarískir hagsmunir væru hafðir að leiðarljósi við allar ákvarðanir í utanríkismálum. Bandaríkjamenn ættu ekki að fórna mannslífum, verja gífurlegum fjármunum til hernaðar eða tryggja öryggi annarra ríkja án þess að skýrir bandarískir hagsmunir væru í húfi. Trump hafði endurvakið þessa stefnu og gert hana að einni meginstoð stjórnmálahreyfingar sinnar. Með stríðinu við Íran braut hann, að mati Doughertys, eitt mikilvægasta loforðið sem hann hafði gefið kjósendum.

Þegar Bandaríkin gerðu árásir á kjarnorkumannvirki Írans árið 2025 lagði Trump áherslu á að þau hefðu verið gjöreyðilögð. Með því gat hann annars vegar sýnt hernaðarlegan styrk og hins vegar haldið því fram að hættunni hefði verið afstýrt án langvarandi átaka. Þegar hann hóf nýjar hernaðaraðgerðir í febrúar 2026 reyndist lítil innistæða fyrir þeirri fullyrðingu.
Trump kynnti upphaf hernaðaraðgerðanna um miðja nótt frá Mar-a-Lago og hvatti meðal annars Írana til uppreisnar gegn klerkastjórninni. Bandaríska þingið hafði ekki samþykkt stríðið og almenningur hafði ekki fengið skýran rökstuðning um markmið þess. Forsetinn virtist ganga út frá því að skjótur sigur myndi réttlæta ákvörðunina eftir á. Þegar hann ávarpaði loks þjóðina í sjónvarpi mánuði eftir að átökin hófust sagði hann að þeim myndi ljúka innan fjögurra vikna.
Sú varð ekki raunin. Hormuz-sund var lokað í átta mánuði og umferð um það hefur enn ekki náð fyrra umfangi. Stríðið raskaði orkumörkuðum, jók verðbólguþrýsting og kallaði á mikla tilfærslu bandarísks herafla og vopnabúnaðar. Það hafði þannig áhrif langt út fyrir vígvöllinn í Mið-Austurlöndum.
Reikningurinn barst bandarískum heimilum
Stríðið við Íran varð ekki aðeins utanríkispólitískt áfall heldur einnig efnahagslegt. Fjórum dögum áður en Trump hóf hernaðaraðgerðirnar hafði hann státað sig af lækkandi bensínverði. Þá kostaði gallonið að meðaltali 2,98 dollara en á kjördag var verðið komið í 4,15 dollara. Dísilolía hafði á sama tíma hækkað úr 3,75 dollurum í 6,29 dollara.
Samkvæmt þeim áætlunum sem Dougherty vísar til nam kostnaður stríðsins nærri 2.000 dollurum á hverja bandaríska fjölskyldu. Hærra orkuverð hafði áhrif á flutningskostnað, matvælaverð og almenna verðbólgu. Tollastefna Trumps bætti síðan við verðþrýstinginn, þótt áhrif hennar væru minni en afleiðingar stríðsins. Fyrir heimili sem þegar glímdu við háan framfærslukostnað skipti hver dollar máli.
Þetta skýrir að mati Doughertys hvers vegna ekki er hægt að skilja á milli efnahagsmála og utanríkisstefnu þegar úrslit kosninganna eru metin. Þótt kjósendur hafi oftar nefnt framfærslukostnað en utanríkismál sem helsta áhyggjuefni sitt voru þessir tveir málaflokkar nátengdir. Áhrif stríðsins birtust í heimilisbókhaldinu, við bensíndæluna, í matvöruversluninni og á kreditkortareikningnum. Bandaríkjamenn þurftu ekki að fylgjast náið með átökunum í Mið-Austurlöndum til að finna fyrir afleiðingunum.
Í leiðara National Review er tekið undir að stríðið hafi haft veruleg áhrif á kosningarnar, þótt þar sé lögð áhersla á að staða repúblikana hafi verið erfið áður en átökin hófust. Samkvæmt þeim könnunum sem tímaritið vísar til töldu nær þrír af hverjum fjórum kjósendum Íransstríðið hafa skipt miklu eða verulegu máli við ákvörðun sína. Demókratar höfðu 27 prósentustiga forskot meðal þessara kjósenda. Stríðið magnaði þannig óánægju sem hafði þegar grafið um sig.
Fylgi við Trump sjálfan hafði hrunið. Samkvæmt útgönguspám naut hann aðeins stuðnings 38% kjósenda, minna en George W. Bush þegar repúblikanar töpuðu þingmeirihlutanum árið 2006. Fylgið hafði tekið að dala í kjölfar tollaaðgerða og harðrar framkvæmdar innflytjendastefnunnar en féll enn frekar eftir að stríðið hófst. Í ágúst var stuðningurinn kominn niður í 33% samkvæmt þeim könnunum sem Dougherty rekur.
Forseti sem varð byrði fyrir eigin flokk
Í leiðara National Review er bent á að Trump hafi verið kjörinn til annars kjörtímabils ekki síst vegna óánægju almennings með verðbólgu og framfærslukostnað. Þrátt fyrir það hafi hann tekið ákvarðanir sem gerðu neysluvörur dýrari og aukið óvissu í efnahagslífinu. Tollastefna hans er sögð hafa verið ómarkviss og í andstöðu við stjórnarskrána. Í stað þess að einbeita sér að helstu áhyggjuefnum kjósenda hafi forsetinn eytt mikilli orku í persónuleg gæluverkefni.
Þar eru nefndar áætlanir um nýjan danssal við Hvíta húsið, breytingar á Kennedy Center, endurbætur á Spegiltjörninni (Reflecting Pool) og endurbygging golfvallar við Potomac-fljót. Þessi verkefni eigi lítið átt skylt við þau viðfangsefni sem almenningur taldi brýnust. Forsetinn hafi þannig fjarlægst daglegar áhyggjur kjósenda á sama tíma og efnahagslegur þrýstingur jókst. Það hafi gert repúblikönum erfiðara að sannfæra kjósendur um að flokkurinn væri að vinna í þeirra þágu.
Trump hvatti kjósendur til að líta svo á að hann sjálfur væri í framboði í þingkosningunum. Margir urðu við þeirri áskorun, en ekki með þeim hætti sem forsetinn hafði vonast til. Samkvæmt könnun Fox News sögðu 43% kjósenda að andstaða við Trump hefði verið ein af ástæðum þess að þeir greiddu atkvæði. Aðeins 16% sögðust hafa kosið meðal annars til að lýsa stuðningi við hann.
Þreytu vegna langvarandi yfirburðastöðu Trumps í bandarískum stjórnmálum gætti einnig. Hann hefur verið ráðandi í pólitískri umræðu frá því hann tilkynnti fyrst um forsetaframboð sitt fyrir rúmum ellefu árum. Í leiðara National Review er bent á að forsetar hafi oft orðið fyrir verulegu fylgistapi á sjötta ári sínu í embætti, líkt og Bush árið 2006 og Barack Obama árið 2014. Þótt kjörtímabil Trumps hafi ekki verið samfelld hafi svipuð pólitísk þreyta greinilega gert vart við sig.

Við þetta bættust mistök í vali frambjóðenda. Í Texas völdu repúblikanar Ken Paxton, sem hafði verið umdeildur vegna hneykslismála, fram yfir John Cornyn, sem hafði fjórum sinnum unnið öruggan sigur í öldungadeildarkosningum. Í Suður-Karólínu studdi Trump Darline Graham, systur hins látna öldungadeildarþingmanns Lindsey Graham, þrátt fyrir takmarkaða stjórnmálareynslu hennar. Hún reyndist illa undirbúin fyrir kosningabaráttuna og átti í erfiðleikum með að svara einföldum spurningum.
Nýja hægristefnan brást
Ross Douthat, sem skrifar í The Free Press telur að kosningaósigurinn kalli á mun víðtækara uppgjör en aðeins gagnrýni á Trump. Hann beinir sjónum að þeirri nýju hægristefnu sem varð til í kjölfar forsetasigurs Trumps árið 2016 og átti að endurnýja bandaríska íhaldsstefnu. Hreyfingin taldi sig hafa áttað sig á þeim samfélagsbreytingum sem hefðbundnir íhaldsmenn höfðu annaðhvort vanmetið eða horft fram hjá. Hún hafi greint ýmis raunveruleg vandamál en reyndist illa í stakk búin til að leysa þau þegar hún komst til valda.
Nýja hægristefnan lagði áherslu á mikilvægi landamæraeftirlits og takmarkana á innflytjendum, gagnrýndi misheppnaða utanríkisstefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og vildi endurreisa bandarískan iðnað. Hún reyndi jafnframt að höfða til ungra karla sem upplifðu efnahagslegt óöryggi og takmarkaða möguleika á að eignast húsnæði og stofna fjölskyldu. Þá taldi hreyfingin að hefðbundin íhaldsstefna, sem lagði fyrst og fremst áherslu á frjálsan markað og takmörkuð ríkisafskipti, hefði ekki haft nægilega skýr svör við menningarlegum og félagslegum breytingum samtímans.
Þegar Trump vann forsetakosningarnar árið 2024 töldu talsmenn nýju hægristefnunnar að loks væri komið að því að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Þeir höfðu haft áhrif á fyrra kjörtímabil hans en ætluðu nú að móta stefnu ríkisstjórnarinnar með afgerandi hætti. Douthat telur að þeim hafi mistekist á öllum fjórum meginsviðum stefnunnar: innflytjendamálum, utanríkismálum, efnahagslegri endurreisn og menningarlegri endurnýjun.
Í innflytjendamálum náðist vissulega mikilvægur árangur. Stjórn Trump tókst að loka landamærunum með mun áhrifaríkari hætti en margir höfðu talið mögulegt. En í stað þess að byggja á þeim árangri og tryggja víðtæka sátt um framkvæmd stefnunnar lögðu róttækustu stuðningsmenn hennar áherslu á brottvísun milljóna manna á skömmum tíma. Harðneskjulegar aðgerðir og sífellt öfgakenndari orðræða urðu til þess að grafa undan þeim fjölbreytta kjósendahópi sem hafði stutt Trump.
Í utanríkismálum varð niðurstaðan enn afdrifaríkari. Nýja hægristefnan hafði komið fjölda manna til áhrifa innan ríkisstjórnarinnar sem voru andvígir nýjum hernaðarævintýrum. Þegar á reyndi tókst þeim hins vegar ekki að hafa hemil á forsetanum sjálfum. Douthat telur að þetta sýni að gagnrýni á hernaðaríhlutun hafi aldrei náð að festa sig nægilega í sessi innan Repúblikanaflokksins. Hin hefðbundna herskáa utanríkisstefna átti enn öfluga stuðningsmenn, bæði meðal kjósenda og íhaldssamra fjölmiðla.
Douthat gagnrýnir jafnframt hvernig nýja hægristefnan nálgaðist alþjóðasamskipti. Hann telur að hægt hefði verið að endurskoða þróunaraðstoð, leita vopnahlés í Úkraínu og draga úr skuldbindingum Bandaríkjanna í Evrópu án þess að stjórnvöld kæmu fram eins og siðlaus yfirgangsseggur. Hann minnir á að repúblikanar á borð við Dwight Eisenhower og Richard Nixon hafi sameinað raunsæja utanríkisstefnu ákveðnum hugsjónum. Það jafnvægi hafi skort í framkvæmd nýju hægristefnunnar.
Iðnaðaruppbygging sem skilaði ekki því sem lofað var
Efnahagsstefnan olli einnig vonbrigðum að mati Douthats. Nýja hægristefnan hafði lofað endurreisn bandarísks iðnaðar, fleiri vel launuðum störfum og auknum tækifærum fyrir almennt launafólk. Í reynd hafi skattastefna ríkisstjórnarinnar að mestu byggst á hefðbundnum skattalækkunum repúblikana fyrir tekjuhærri hópa, auk sérstakra ívilnana fyrir eldri borgara. Lítið hafi orðið úr þeirri róttæku endurskoðun efnahagsstefnunnar sem talsmenn nýju hægristefnunnar höfðu boðað.
Douthat bendir á að samstarf nýju hægristefnunnar við áhrifamenn tæknigeiranum í Silicon Valley hafi átt að stuðla að nýrri iðnbyltingu í Bandaríkjunum. Tækniframfarir og fjárfestingar áttu að renna stoðum undir framleiðslu, atvinnusköpun og aukna efnahagslega möguleika almennings. En í stað verksmiðja sem framleiddu bíla, vörubíla og eldflaugar hafi almenningur fyrst og fremst séð risavaxin gagnaver rísa á áður óbyggðum svæðum. Þau sköpuðu vissulega einhver störf en vöktu jafnframt áhyggjur af framtíð atvinnulífsins og stöðu mannsins í hagkerfi þar sem gervigreind fær sífellt meira vægi.
Þessi þróun hafi sérstaklega valdið vonbrigðum meðal ungra kjósenda sem höfðu bundið vonir við Trump. Ungir karlar sem áttu erfitt með að eignast húsnæði, stofna fjölskyldu og tryggja sér efnahagslegt sjálfstæði sáu ekki hvernig gagnaver og framþróun gervigreindar myndu bæta stöðu þeirra. Þeir gátu hugsanlega horft upp á hækkandi hlutabréfaverð án þess að eiga sjálfir hlutdeild í ávinningnum. Í stað fyrirheitanna um endurreisn bandarískrar millistéttar blasti við þeim framtíð þar sem tækniframfarir gætu jafnvel gert vinnu þeirra óþarfa.
Douthat telur að breytingar á afstöðu Elons Musks séu táknrænar fyrir þessa þróun. Musk hafi áður verið holdgervingur þeirrar hugmyndar að mannlegt hugvit og tækniframfarir gætu opnað nýja möguleika í raunheimum. Nú sé áherslan í vaxandi mæli á hraða þróun gervigreindar, jafnvel þótt afleiðingarnar fyrir atvinnu og samfélag séu óljósar. Sú framtíðarsýn hafi reynst fjarri þeim efnahagslegu væntingum sem nýja hægristefnan hafði vakið.
Menningarlega endurnýjunin varð að engu
Harðasta gagnrýni Douthats beinist þó að því sem hann telur algjört skipbrot nýju hægristefnunnar á sviði menningarmála. Margir áhrifamenn hreyfingarinnar höfðu boðað endurreisn fjölskyldugilda, trúarlegra viðhorfa og samfélagslegrar ábyrgðar. Þeir höfðu gagnrýnt áhrif kláms, stafrænnar fíknar og menningar sem ýtti undir skammtímaánægju á kostnað fjölskyldulífs og varanlegra tengsla. Markmiðið var að skapa menningarlegt mótvægi við þá frjálslyndu hugmyndafræði sem hafði verið ráðandi í bandarísku samfélagi.
Þegar hreyfingin komst til valda reyndust þessi fyrirheit hins vegar innantóm. Douthat segir að menningarleg endurnýjun hafi að mestu takmarkast við táknrænar yfirlýsingar á samfélagsmiðlum. Baráttan gegn fóstureyðingum hafi horfið af sjónarsviðinu, fjölskyldustefnan aldrei náð flugi og hugmyndin um nýja þjóðrækna forystusveit hafi leyst upp í tækifærismennsku og eiginhagsmunagæslu. Í stað siðferðilegrar endurreisnar hafi ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar í reynd ýtt undir þá menningu taumleysis sem þeir höfðu áður gagnrýnt.
Douthat dregur upp dökka mynd af stjórnmálahreyfingu sem hafði lofað að endurreisa samfélagsleg gildi en lét þess í stað undan spillingu, yfirborðsmennsku og persónudýrkun. Hann bendir á að trúarleg endurvakning í bandarísku samfélagi kunni jafnvel að hafa gagnast demókrötum fremur en repúblikönum. Kjósendur sem lögðu áherslu á trú, fjölskyldu og siðferðilega ábyrgð hafi ekki endilega séð þau gildi endurspeglast í framgöngu þeirra sem stjórnuðu í nafni nýju hægristefnunnar. Þar með hafi hreyfingin glatað trúverðugleika á sviði sem átti að vera eitt helsta styrkleikamerki hennar.
Ósigur repúblikana er ekki hugmyndafræðilegur sigur vinstrimanna
Þrátt fyrir umfangsmikinn kosningasigur demókrata telur ritstjórn National Review að varasamt sé að túlka úrslitin sem almenna viðurkenningu kjósenda á hugmyndafræði bandarískra vinstrimanna. Þvert á móti bendi skoðanakannanir til þess að bandaríska þjóðin sé enn fremur hægrisinnuð en vinstrisinnuð. Aðeins 25% kjósenda skilgreindu sig sem frjálslynda í bandarískum stjórnmálaskilningi, 34% sem íhaldssama og 41% sem hófsama. Repúblikanar nutu jafnframt örlítið meira trausts en demókratar í skattamálum og innflytjendamálum.
Afstaðan til sósíalisma er einnig athyglisverð. Innan við þriðjungur kjósenda sagðist hafa jákvæða afstöðu til sósíalisma og aðeins 9% mjög jákvæða. Þessar niðurstöður benda, að mati National Review, ekki til þess að Bandaríkjamenn hafi snúið sér almennt til vinstri í efnahags- og þjóðfélagsmálum. Miklu fremur hafi þeir hafnað forseta og stjórnmálaflokki sem hafði brugðist væntingum þeirra.
Þessi aðgreining skiptir máli þegar framtíð bandarískra stjórnmála er metin. Demókratar hafa fengið sterkt umboð til að veita Trump aðhald en það jafngildir ekki endilega stuðningi við róttækar breytingar á bandarísku samfélagi. Kosningarnar snerust að verulegu leyti um frammistöðu sitjandi forseta, ákvarðanir hans og afleiðingar þeirra fyrir almenning. Repúblikanar töpuðu ekki vegna þess að öll grundvallarsjónarmið þeirra hefðu misst fylgi heldur vegna þess að kjósendur treystu þeim ekki lengur til að stjórna.
Það dregur þó ekki úr pólitískum afleiðingum ósigursins. Með meirihluta í báðum deildum þingsins geta demókratar stöðvað mikilvæg lagafrumvörp forsetans og komið í veg fyrir að hann fái samþykki fyrir tilnefningum dómara næstu tvö árin. Þeir geta jafnframt beitt rannsóknarheimildum þingsins til að kalla ráðherra og aðra embættismenn fyrir nefndir, krefjast afhendingar skjala og rannsaka ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Jafnvel kunna að verða gerðar tilraunir til að hefja nýtt embættisbrotaferli gegn forsetanum.
Í leiðara National Review er sérstaklega varað við því að demókratar kunni að nýta sigurinn sem stökkpall fyrir forsetakosningarnar 2028. Takist þeim að ná Hvíta húsinu gætu þeir fengið tækifæri til umfangsmikilla breytinga á bandarískri löggjöf. Tímaritið óttast meðal annars að þeir muni reyna að afnema þær málþófsreglur öldungadeildarinnar sem gera almennt kröfu um 60 atkvæða stuðning til að ljúka umræðu um mikilvæg lagafrumvörp. Slík breyting gæti auðveldað meirihlutaflokki að knýja fram róttækar breytingar án víðtækrar samstöðu.
Hvað tekur við eftir Trump?
Douthat telur að nýja hægristefnan sé ekki endilega dauð þótt hún hafi beðið sögulegan ósigur. Vandinn sé meðal annars sá að engin önnur grein bandarískrar íhaldsstefnu virðist tilbúin til að taka við og svara þeim samfélagslegu áskorunum sem hreyfingin hafði réttilega greint. Hefðbundin Reagan-íhaldsstefna hafi ekki sjálfkrafa svör við áhrifum gervigreindar, hnignun iðnaðarsvæða, óöryggi ungs fólks eða menningarlegum breytingum. Þess vegna sé ekki nóg að hafna Trump og snúa einfaldlega aftur til fortíðarinnar.
Nýja hægristefnan þurfi hins vegar að hefja uppbyggingu sína nánast frá grunni. Hún verði að finna leiðtoga sem geti annaðhvort aðgreint sig með trúverðugum hætti frá stjórnarferli Trumps eða hafi staðið utan við ríkisstjórn hans. Hún verði að hafna spillingu, tækifærismennsku og þeirri pólitísku orðræðu sem hafi fjarlægt hana frá stórum hópum kjósenda. Jafnframt verði hún að nálgast tækniframfarir og gervigreind af meiri alvöru og með meiri varfærni en hingað til.
Dougherty telur að Trump hafi sjálfur rofið þau tengsl við kjósendur sem gerðu honum kleift að endurmóta Repúblikanaflokkinn. Með því að hefja nýtt stríð í Mið-Austurlöndum hafi forsetinn snúið baki við einni mikilvægustu forsendu stjórnmálahreyfingar sinnar. Hann hafi þannig endurtekið þau mistök George W. Bush sem hann hafði sjálfur byggt pólitískan uppgang sinn á að gagnrýna.
Í þessu felst að mati Doughertys sérstök kaldhæðni. Trump hafði ætlað sér að knýja fram stjórnarskipti í Íran en þegar upp var staðið sátu klerkarnir enn við völd í Teheran. Stjórnarskiptin urðu þess í stað í Washington, þar sem repúblikanar misstu tökin á þinginu. Forsetinn hafði ætlað að sýna styrk Bandaríkjanna en endaði á því að veikja eigin pólitíska stöðu.
Uppgjör sem verður ekki umflúið
Greinarnar þrjár draga upp mynd af stjórnmálaflokki sem hefur glatað tengslum við stóran hluta þeirra kjósenda sem færðu honum sigur árið 2024. Áherslurnar eru ólíkar en niðurstaðan er á margan hátt samhljóða. National Review leggur áherslu á pólitísk mistök forsetans, óvinsæla stefnu og óheppilegt val frambjóðenda. Dougherty sér í Íransstríðinu afdrifarík svik við grundvallarloforð Trumps, en Douthat telur ósigurinn jafnframt afhjúpa djúpstæðan veikleika þeirrar hugmyndafræðilegu hreyfingar sem ætlaði að endurnýja bandaríska hægristefnu.
Þótt Trump hafi tekist að loka landamærunum og framlengja mikilvægar skattalækkanir dugði sá árangur ekki til að vega upp á móti stríði, hækkandi framfærslukostnaði og vaxandi óánægju. Nýja hægristefnan hafði lofað endurreisn iðnaðar, auknu efnahagslegu öryggi og menningarlegri endurnýjun. Hún hafði einnig lofað að binda enda á þá utanríkisstefnu sem leiddi Bandaríkin inn í kostnaðarsöm og langvinn stríð. Á öllum þessum sviðum stóð árangurinn langt að baki væntingunum.
Fyrir Repúblikanaflokkinn er því ekki aðeins spurning hvernig vinna megi aftur meirihluta á Bandaríkjaþingi eða tryggja sigur í forsetakosningunum 2028. Stærri spurningin er hvaða stefna eigi að taka við þegar stjórnmálaferli Trumps lýkur og hvort flokkurinn geti endurheimt traust þeirra kjósenda sem hann hefur misst. Nýja hægristefnan hafði á sínum tíma réttilega bent á ýmsa veikleika bandarísks samfélags og stjórnmálakerfis. En eins og Douthat bendir á er lítils virði að átta sig á samtímanum ef menn kunna ekki að nýta tækifærið þegar þeir fá völdin.
