Kínverskum ferðamönnum fjölgar um þriðjung
Mikil fjölgun ferðamanna frá Kína og Kanada vekur athygli á sama tíma og heildarfjöldi erlendra ferðamanna til Íslands hefur lítið breyst. Kínverjar voru næstfjölmennasti hópur ferðamanna í september og fjölgaði þeim um nær þriðjung frá fyrra ári. Kanadamönnum fjölgaði enn meira, eða um tvo þriðju. Nýtt áætlunarflug Air China milli Peking og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, er talið geta styrkt kínverska ferðamannamarkaðinn enn frekar.
Samkvæmt greiningu Íslandsbanka frá 13. október fóru um 228 þúsund erlendir ferðamenn frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í september, 1,7% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Bandaríkjamenn voru sem fyrr fjölmennastir og stóðu undir tæplega þriðjungi brottfara.
Kínverskir ferðamenn voru í öðru sæti, eða um 8% heildarfjöldans, og fjölgaði þeim um nær 33% milli ára. Kanadamenn voru í þriðja sæti með 6,5% hlutdeild og fjölgaði um tvo þriðju. Þjóðverjar voru 6,3% ferðamanna og Bretar 5,5%.

Ný flugleið frá Kína
Mánudaginn 26. október hóf kínverska flugfélagið Air China reglubundið áætlunarflug milli Peking og Keflavíkur með viðkomu í Kaupmannahöfn. Flogið verður þrisvar í viku, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum, allt árið.
Þetta er í fyrsta sinn sem kínverskt flugfélag heldur úti reglubundnu farþegaflugi til Íslands. Þótt flogið sé með viðkomu í Danmörku er um samfellda flugleið að ræða sem auðveldar ferðalög milli landanna.
Við komu fyrstu flugvélarinnar sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að nýja flugleiðin gæti styrkt ferðaþjónustu allt árið, ekki síst vegna áhuga kínverskra ferðamanna á vetrarferðum til Íslands. Hann benti einnig á tækifæri fyrir íslenska útflytjendur, meðal annars vegna flutninga á fersku sjávarfangi.
Gistinóttum Kínverja fjölgar um 40%
Nýjustu tölur Hagstofu Íslands renna frekari stoðum undir aukið vægi kínverskra ferðamanna. Í september voru gistinætur Kínverja á íslenskum hótelum um 53 þúsund og fjölgaði þeim um 40% frá sama mánuði árið áður.
Alls voru gistinætur á hótelum tæplega 561 þúsund í september, 3% fleiri en árið áður. Mest var hlutfallsleg fjölgun á Suðurnesjum, 8,6%, og á Vesturlandi og Vestfjörðum, 7,2%. Á höfuðborgarsvæðinu var fjölgunin aðeins 0,2%.
Meiri tekjur þrátt fyrir færri ferðamenn
Á fyrstu níu mánuðum ársins fækkaði erlendum ferðamönnum um Keflavíkurflugvöll um 0,8% frá sama tímabili í fyrra. Þrátt fyrir það hafa tekjur ferðaþjónustunnar sýnt jákvæða þróun.
Samkvæmt Íslandsbanka fjölgaði gistinóttum á skráðum gististöðum um 3% yfir sumarmánuðina júní til ágúst og velta erlendra greiðslukorta jókst um meira en 7% á föstu gengi.
Þróunin bendir til þess að lengri dvöl og aukin útgjöld hvers ferðamanns geti skipt sífellt meira máli fyrir afkomu ferðaþjónustunnar. Mikil fjölgun ferðamanna frá Kína og Kanada, ásamt bættum flugsamgöngum við Asíu, gæti styrkt þá þróun á næstu misserum.
