„Þegar þú vilt hjálpa fólki segirðu því sannleikann“
Hagfræði er oft kölluð „vísindi eymdarinnar“ (the dismal science), en fáir hafa gert meira í gegnum tíðina til að bæta orðspor hennar en Thomas Sowell.
Hagfræðingurinn, sem er 96 ára, hefur skrifað meira en 45 bækur, þar á meðal metsölubækur á borð við Basic Economics, Black Rednecks and White Liberals og Economic Facts and Fallacies. Hann hefur einnig skrifað um stjórnmál, félagsfræði, menntamál, kynþáttamál og fjölmörg önnur viðfangsefni.
Thomas Sowell hóf akademískan feril sinn sem lektor við Cornell-háskóla og naut leiðsagnar Miltons Friedmans. Sowell hefur kennt hagfræði við Howard-háskóla, Rutgers-háskóla, Cornell-háskóla, Brandeis-háskóla, Amherst College og Kaliforníuháskóla í Los Angeles (UCLA). Frá árinu 1980 hefur hann verið yfirrannsóknarmaður (senior fellow) við Hoover-stofnunina (Hoover Institution) við Stanford-háskóla.
22 tilvitnanir í Thomas Sowell
- „Sumt er talið satt vegna þess að hægt er að sýna fram á sannleiksgildi þess. En margt annað er talið satt einfaldlega vegna þess að því hefur verið haldið svo oft fram að endurtekningin er tekin gild í stað sönnunargagna.“
- „Þegar þú vilt hjálpa fólki segirðu því sannleikann. Þegar þú vilt hjálpa sjálfum þér segirðu því það sem það vill heyra.“
- „Með öðrum orðum eru sönnunargögn of hættuleg – pólitískt, fjárhagslega og sálfræðilega – til þess að sumir geti leyft þeim að ógna hagsmunum sínum eða sjálfsmynd.“
- „Sumt verður að byggjast á trú, en hættulegasta tegund trúar er sú sem dulbýr sig sem ‘vísindi’.“
- „Það þarf töluverða þekkingu til þess eins að gera sér grein fyrir umfangi eigin vanþekkingar.“
- „Þeir sem taka mið af staðreyndum geta leiðrétt mistök sín, en kreddufesta þeirra sem eru bundnir ákveðinni hugmyndasýn verður ekki leiðrétt með staðreyndum.“
- „Það eru aðeins tvær leiðir til að segja allan sannleikann – nafnlaust eða eftir dauðann.“
- „Kröfur sem engin takmörk eru sett fyrir fela í sér umboð til sívaxandi ríkisskrifræðis, með sífellt auknum fjárveitingum og völdum.“
- „Ég hef aldrei skilið hvers vegna það er kallað græðgi að vilja halda þeim peningum sem maður hefur unnið sér inn, en ekki græðgi að vilja taka peninga annarra.“
- „Í gamla hverfinu mínu var sérstök fyrirlitning á þeim náunga sem var sífellt að reyna að egna tveimur öðrum mönnum hvorum gegn öðrum. Í dag þykir það mikið framlag til samfélagsins að etja neytendum gegn framleiðendum, leigjendum gegn leigusölum, konum gegn körlum og kynþáttum hverjum gegn öðrum.“
- „Það er erfitt að ímynda sér heimskulegri eða hættulegri leið til ákvarðanatöku en að fela ákvarðanirnar fólki sem þarf ekki sjálft að gjalda fyrir að hafa rangt fyrir sér.“
- „Raunverulega markmiðið ætti að vera að draga úr ríkisútgjöldum, fremur en að ná jafnvægi í ríkisfjármálum með síhækkandi sköttum til að standa undir sívaxandi útgjöldum.“
- „Samkeppni stendur sig mun betur en stjórnvöld við að vernda neytendur.“
- „Meginágreiningurinn í þessu landi er ekki milli demókrata og repúblikana, eða kvenna og karla, heldur milli þeirra sem tala og þeirra sem framkvæma.“
- „Ef þú hefur alltaf trúað því að allir eigi að lúta sömu reglum og vera metnir samkvæmt sömu mælikvörðum, hefðirðu verið kallaður róttæklingur fyrir 60 árum, frjálslyndur fyrir 30 árum og rasisti í dag.“
- „Fyrsta lexía hagfræðinnar er skortur: Það er aldrei nóg til af neinu til að fullnægja óskum allra sem vilja það. Fyrsta lexía stjórnmálanna er að hunsa fyrstu lexíu hagfræðinnar.“
- „Kapítalisminn þekkir aðeins einn lit: grænan [lit peninganna]. Allt annað hlýtur að víkja fyrir honum og því geta kynþáttur, kyn og þjóðernisuppruni ekki verið ráðandi sjónarmið innan hans.“
- „Hæsta og jafnframt skaðlegasta „skatthlutfallið“ sem fátækir standa frammi fyrir stafar af því að missa ýmsar bætur velferðarkerfisins – mataraðstoð, húsnæðisstyrki og annað slíkt – þegar tekjur þeirra hækka.“
- „En lífið spyr okkur ekki hvað við viljum. Það leggur fyrir okkur valkosti. Hagfræðin er ein leið til að reyna að nýta þessa valkosti sem best.“
- „Stundum virðist sem lausnirnar séu fleiri en vandamálin. Við nánari athugun kemur hins vegar í ljós að mörg vandamál dagsins í dag eru afleiðingar lausna gærdagsins.“
- „Það skiptir engu máli hversu gáfaður þú ert ef þú staldrar ekki við og hugsar.“
- „Þegar fólk venst á forréttindi fer það að líta á jafna meðferð sem mismunun.“
