Gervigreind bönnuð – ofurgreind skal það vera

Bandarískum ríkisstofnunum hefur verið fyrirskipað að hætta að nota hugtakið Artificial Intelligence, eða gervigreind, í opinberum samskiptum og taka þess í stað upp heitið Super Intelligence – ofurgreind.

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði forsetatilskipun þess efnis 29. september. Tilskipunin ber heitið Inaugurating the Era of Super Intelligence, sem mætti þýða sem „Upphaf tímabils ofurgreindar“.

Í tilskipuninni segir að núverandi heiti endurspegli ekki nægilega vel þá miklu möguleika sem tæknin bjóði upp á. Orðið „artificial“ gefi ranga mynd af framförunum og getu tækninnar.

Þess vegna skulu alríkisstofnanir, eftir því sem lög heimila, nota Super Intelligence og skammstöfunina SI í stað Artificial Intelligence og AI. Þetta gildir um opinbera upplýsingagjöf, skýrslur, vefsíður, bréfaskipti og ýmis stjórnsýslugögn.

Athygli vekur að samkvæmt tilskipuninni merkir nýja hugtakið nákvæmlega það sama og hið eldra samkvæmt gildandi lögum. Ekki er verið að skilgreina nýja tækni, heldur gefa þeirri sem fyrir er nýtt nafn.

Eldri reglugerðir, samningar og skjöl þurfa ekki að sæta breytingum. Vísinda- og tækniráðgjafi forsetans hefur hins vegar fengið 60 daga frest til að leggja fram tillögur að nýrri lagalegri skilgreiningu.

Breska dagblaðið The Guardian fjallaði um tilskipunina 29. september og benti á að nafnbreytingin væri hluti af stærri áformum forsetans um að styrkja forystu Bandaríkjanna á sviði gervigreindar.