Sektir við að gefa dúfunum

Það er ekki einfalt mál að gefa fuglunum í Bretlandi. Að minnsta kosti ekki ef hugmyndir sveitarstjórnar Havering í austurhluta Lundúna verða að veruleika. Þar hafa yfirvöld lagt fram tillögur að nýjum reglum um háttsemi á almannafæri. Þær ná meðal annars til þess að gefa villtum dýrum, þar á meðal fuglum, æti.

Samráði um tillögurnar lauk föstudaginn 23. október. Með þeim vilja borgaryfirvöld fá auknar heimildir til að sekta fólk fyrir háttsemi sem veldur ónæði, skaðar umhverfið eða ógnar almannaheilbrigði. Sektir gætu numið 100 pundum á staðnum og allt að 1.000 pundum ef mál fer fyrir dómstóla. Engin endanleg ákvörðun hefur þó verið tekin um reglurnar.

Fuglafóðrunin er aðeins hluti af málinu. Tillögurnar ná einnig til hópa tveggja eða fleiri einstaklinga sem valda ónæði, götulistamanna sem nota hljóðmagnara og fólks sem hylur andlit sitt í því skyni að áreita aðra.

En það voru einkum reglurnar um dýrafóðrun sem vöktu athygli íbúanna. Þeir óttuðust að bannað yrði að gefa svöngum dýrum æti, jafnvel í almenningsgörðum.

Í frétt Francescu Lilleystone í The Havering Daily 3. september kom fram að Terry Brown, fulltrúi sveitarstjórnarinnar, hefði útskýrt að markmiðið væri fyrst og fremst að koma í veg fyrir að dúfufóðrun í miðbæjum drægi að sér rottur.

Hann tók jafnframt fram að ekki væri ætlunin að banna fólki að gefa villtum dýrum æti í almenningsgörðum og öðrum náttúrulegum búsvæðum þeirra.