Verkstjórnin sem lætur Alþingi bíða

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, sem kenndi sig við verkstjórn, virðist eiga í erfiðleikum með að koma eigin málum til Alþingis. Af 159 málum sem ríkisstjórnin boðaði á þingmálaskrá í september höfðu aðeins 34 verið lögð fram 21. október, þar af 28 lagafrumvörp, fimm þingsályktunartillögur og ein ráðherraskýrsla. Alls voru 125 mál enn ófram komin, eða tæplega 79% þingmálaskrárinnar. Þótt mörg þeirra séu ekki áætluð fyrr en síðar á þingvetri er athyglisvert hversu fá mál hafa komið fram fyrstu sex vikurnar eftir þingsetningu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar eru 133 lagafrumvörp, 17 þingsályktunartillögur og níu skýrslur. Umfangið er því verulegt. En það er ekki fjöldi fyrirheita sem ræður úrslitum um árangur ríkisstjórnar heldur hvort hún stendur við eigin áætlanir og tryggir Alþingi nægan tíma til að fjalla um þau mál sem hún vill fá samþykkt.

Ráðherrarnir og þingmálaskráin

Af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagt fram flest frumvörp, fimm hvor. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram fjögur frumvörp, þar á meðal fjárlagafrumvarpið og svonefndan bandorm. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hafa lagt fram þrjú frumvörp hvort.

Fæst frumvörp hafa komið frá utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, eitt frá hverjum. Nokkrir þessara ráðherra hafa einnig lagt fram þingsályktunartillögur. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur lagt fram tvö frumvörp og eina skýrslu.

Þegar litið er á heildarþingmálaskrána kemur fram að fjármála- og efnahagsráðherra hefur boðað 26 mál, en aðeins fjögur eru komin fram. Atvinnuvegaráðherra hefur lagt fram þrjú af 19 málum, dómsmálaráðherra tvö af 17 og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra eitt af tólf.

Þessi samanburður þarf þó að taka mið af áætluðum framlagningartíma. Ekki verður talið ráðherra til vanefnda að hafa ekki lagt fram frumvarp sem samkvæmt þingmálaskránni á fyrst að koma fram í febrúar eða mars. Öðru máli gegnir um þau mál sem boðuð voru í september en hafa enn ekki séð dagsins ljós.

Alþingi bíður eftir verkefnum

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi seinagang ríkisstjórnarinnar á Alþingi 20. október. Hann benti á að þingfundir hefðu verið stuttir og fá stjórnarfrumvörp komin fram. Sérstaklega kallaði hann eftir frumvarpi um lagareldi svo atvinnuveganefnd gæti hafið umfjöllun um það.

Ríkisstjórn sem boðar umfangsmikla lagasetningu ber ábyrgð á því að undirbúningur sé vandaður og þingið fái nægan tíma til efnislegrar meðferðar. Þegar mál safnast upp undir lok þingvetrar eykst hættan á tímaþröng, flýtiafgreiðslu og takmarkaðri umræðu.

Verkstjórn ríkisstjórnar verður ekki mæld í fjölda mála á þingmálaskrá, heldur því hvort fyrirheitin verða að verkum. Enn sem komið er blasir við að ríkisstjórnin hefur boðað miklu meira en hún hefur lagt fram. Næstu vikur munu leiða í ljós hvort hún nær að breyta þeirri stöðu. Hitt er svo annað að mörg þeirra mála sem komið hafa fram eða hafa verið boðuð mættu falla niður.