Meloni vill setja iðnaðinn í öndvegi efnahagsstefnu Evrópu

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, vill að Evrópusambandið endurskoði loftslagsstefnu sína, slaki á reglum um ríkisfjármál og skapi fyrirtækjum betri samkeppnisskilyrði. Þetta kemur fram í grein Gianluca Guarino, ítalsks greinahöfundar og fréttaskýranda hjá The Conservative, vefriti evrópskra hægrimanna. Guarino fjallar um ræðu Meloni á ársfundi atvinnurekendasamtakanna Assolombarda í Mílanó.

Giorgia Meloni telur að framtíð evrópsks iðnaðar ráðist í vaxandi mæli af pólitískum ákvörðunum fremur en getu fyrirtækjanna sjálfra. Hátt orkuverð, íþyngjandi regluverk og takmarkanir á opinberum fjárfestingum grafi undan samkeppnishæfni evrópskra framleiðslufyrirtækja. Hún vill að Evrópusambandið breyti um áherslur og setji atvinnulíf og iðnaðarframleiðslu í öndvegi efnahagsstefnunnar.

Í ræðu sinni í Mílanó lagði Meloni áherslu á að Ítalía væri áfram staðfastur þátttakandi í Evrópusamstarfinu. Það þýddi þó ekki að ítölsk stjórnvöld ættu að sætta sig við reglur sem sköðuðu atvinnulíf landsins. Sem eitt af stofnríkjum Evrópusamstarfsins hefði Ítalía bæði rétt og skyldu til að gagnrýna stefnu sem ekki skilaði tilætluðum árangri.

Loftslagsstefna sem flytur iðnað úr landi

Harðasta gagnrýni Meloni beindist að viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, ETS. Hún telur kerfið hækka orkukostnað, skapa ójafna samkeppnisstöðu milli aðildarríkja og veikja evrópskan iðnað gagnvart fyrirtækjum í löndum þar sem umhverfiskröfur eru minni.

Meloni tók dæmi af stáliðjuveri í Langbarðalandi sem neyðist til að loka vegna kostnaðar. Ef framleiðslan flyst til ríkis með vægari umhverfisreglur tapar Ítalía störfum, framleiðslugetu og mikilvægum aðfangakeðjum án þess að losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu minnki. Slík niðurstaða grafi að hennar mati bæði undan loftslagsmarkmiðum og efnahagslegu öryggi Evrópu.

Hún lagði áherslu á að raunverulegt stefnumótandi sjálfstæði byggðist á öflugum iðnaði. Evrópa þyrfti áfram stálverksmiðjur, málmsteypur og efnaiðnað. Án slíkrar framleiðslugetu yrði sambandið háðara innflutningi og viðkvæmara fyrir alþjóðlegum áföllum.

Meiri sveigjanleiki í ríkisfjármálum

Meloni vill jafnframt að Evrópusambandið sýni meiri sveigjanleika við framkvæmd reglna um ríkisfjármál. Hún bendir á að átök í Íran, lokun Hormússunds og óstöðugleiki á Rauðahafi hafi aukið kostnað vegna orku, hráefna og flutninga. Slíkar ytri aðstæður geti kallað á sérstök viðbrögð stjórnvalda.

Að mati Meloni verður ekki hægt að tryggja samkeppnishæfni evrópskra fyrirtækja með tímabundnum neyðarráðstöfunum einum saman. Nauðsynlegt sé að finna varanlegar lausnir á orkuvandanum og endurskoða þær reglur sem hamla fjárfestingum og framleiðslu.

Meginboðskapur hennar er að Evrópa geti ekki byggt efnahagslegt sjálfstæði sitt eingöngu á markmiðum og reglugerðum. Til þess þurfi öflugan iðnað, samkeppnishæft orkuverð og fyrirtæki sem hafi fjárhagslegt svigrúm til að fjárfesta, nýta nýja tækni og skapa störf. Framtíð evrópsks efnahagslífs ráðist ekki síst af því hvort stjórnmálamenn séu tilbúnir að laga regluverk sambandsins að raunverulegum samkeppnisskilyrðum fyrirtækja.