Forystuleysi, klíkumyndun og óheilbrigt andrúmsloft
Forystuleysi, ákvarðanafælni, klíkumyndun og erfið samskipti innan þingflokks og forystu Viðreisnar. Þetta eru meginskýringar Jóns Gnarr á því hvers vegna hann taldi sig ekki lengur geta starfað innan þingflokksins. Í viðtölum við Kastljós, Vísi og Spursmál Morgunblaðsins hefur Jón lýst langvarandi óánægju með innra starf flokksins, skorti á pólitískri forystu og andrúmslofti sem hann telur óheilbrigt. Gagnrýnin beinist meðal annars að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formanni Viðreisnar, en Jón hefur einnig staðfest að erfið samskipti hennar við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra séu hluti vandans.
Forystan brást
Í Kastljósi 15. október sagði Jón að langvarandi skortur hefði verið á skýrri forystu innan þingflokksins. Hann hefði sjálfur reynt að sinna skyldum sínum, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og leita lausna, en ekki fengið nægileg viðbrögð. Hann taldi forystuna hafa brugðist sér og lýsti því að hann hefði ekki lengur getað sætt sig við þær aðstæður sem ríktu innan þingflokksins:
„Ég hef ekki brugðist. Ég hef staðið mína plikt en mér finnst forysta flokksins hafa brugðist mér.“
Gagnrýni hans snerist ekki eingöngu um einstakar pólitískar ákvarðanir heldur einnig um skipulag, samskipti og stjórnunarhætti. Hann lýsti klíkumyndun og ákvarðanafælni en vildi ekki nafngreina þá sem hann taldi bera ábyrgð á klíkumynduninni. Jón taldi jafnframt að skortur á skýrri forystu hefði gert honum erfitt að sinna þingmennsku með þeim hætti sem hann sjálfur taldi réttan.
Sérstaklega gagnrýndi hann hversu lengi dróst að skipa nýjan þingflokksformann eftir að Sigmar Guðmundsson fór í veikindaleyfi. Pawel Bartoszek tók ekki við formennsku þingflokksins fyrr en í október. Í Spursmálum á mbl.is sagði Jón að ákvörðunin hefði átt að vera tekin mun fyrr og að þingmönnum hefði verið boðið upp á óviðunandi aðstæður á meðan.
Hann hefur jafnframt lýst því að hann hafi ekki getað haft nægileg áhrif á innra starfið. Í Kastljósi sagði hann:
„Ég sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum þar sem mér finnst ég ekki hafa nokkra einustu stjórn.“
Ágreiningur um pólitískar áherslur
Í viðtali við Vísi 15. október var Jón spurður hvort hann ætti í ágreiningi við einhverja innan þingflokksins. Hann svaraði því játandi og lýsti pólitískum ágreiningi við forystuna um forgangsröðun mála.
„Það hefur verið pólitískur ágreiningur við forystu þingflokksins um pólitískar áherslur.“
Jón nefndi að hann hefði viljað sjá meiri áherslu á frelsi og einstaklingsfrelsi og jafnframt á málefni barna í alvarlegum vanda. Hann viðurkenndi að árangur hefði náðst í þeim málaflokki en sagðist stundum hafa kvartað undan því að fá ekki nægilegan stuðning við baráttumál sín.
Athyglisverðar eru lýsingar Jóns á stöðu Viðreisnar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið í ágúst. Hann segist sjálfur ekki hafa haft sérstaklega sterkar skoðanir á Evrópumálinu, en telur að betur hefði mátt standa að undirbúningi og framkvæmd kosningabaráttunnar.
Jón taldi mikilvægt að Viðreisn skilgreindi pólitíska stöðu sína og stigi skýrar fram eftir ósigurinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hann lýsti niðurstöðunni sem miklu áfalli fyrir marga flokksmenn og pólitískum ósigri sem hefði haft áhrif á starf flokksins.
„Mér fannst að það hefði mátt standa betur að þessu, þetta hefði mátt vera með skipulagðari hætti.“
Hann sýndi því skilning að margir flokksmenn hefðu þurft tíma til að jafna sig eftir niðurstöðuna en hann taldi sig ekki geta haldið áfram að starfa við aðstæður sem samræmdust ekki eigin sannfæringu.
„Ég er ekki að reiðast fólki sem er í áfalli yfir einhverju af því það er ekki að performera af því það er í áfalli, ég er ekki þannig maður en ég get heldur ekki setið í einhverju sem mér finnst ekki vera samkvæmt minni sannfæringu, ég bara get það ekki.“
Erfið samskipti ráðherra Viðreisnar

Í Spursmálum Morgunblaðsins 16. október var Jón spurður um fullyrðingar um stirt samband Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur. Hann staðfesti að hann hefði sjálfur upplifað erfið samskipti þeirra.
„Já, ég hef upplifað það.“
Þegar hann var spurður hvort þessi samskipti væru hluti þeirra aðstæðna sem hann vildi losna undan svaraði hann:
„Það er hluti af þeim.“
Jón lýsti aðstæðunum sem óheilbrigðum og tók fram að hann væri ekki í stöðu til að stjórna þeim. Hann leit á sig sem almennan þingmann sem hefði takmörkuð áhrif á samskipti og ákvarðanir æðstu forystu flokksins.
Úrsögnin sem síðasti kostur
Í viðtalinu við Vísi lýsti Jón því að hann hefði hugleitt úrsögnina frá því í sumar. Hann hefði velt fyrir sér ýmsum leiðum, meðal annars að hætta þingmennsku, láta varamann taka sæti sitt eða sitja áfram án þess að láta mikið fyrir sér fara. Enginn þessara kosta hefði hins vegar samræmst vilja hans til að halda áfram að vinna að þeim málum sem honum væru mikilvæg.
Hann lýsti ákvörðuninni sem erfiðri og sagði að henni fylgdi bæði léttir og sorg. Honum þætti vænt um Viðreisn og vildi ekki valda flokknum skaða. Jafnframt taldi hann að hann yrði að fylgja eigin sannfæringu.
„Ég er bara ekki þannig maður, ég er ekki quitter. Ég klára það sem ég byrja á.“
Úrsögn Jóns Gnarr er fyrst og fremst uppgjör hans við innra starf og forystu Viðreisnar. Hún vekur upp spurningar um hvers vegna ekki tókst að leysa ágreininginn innan þingflokksins og um stöðu Þorgerðar Katrínar sem formanns flokksins.
Sjálfur segist Jón vera starfsmaður á plani og sé sáttur við það. Hann hefði ekki sóst eftir hlutverki Georgs Bjarnfreðarsonar, ráðríka vaktstjórann sem hann lék eftirminnilega í sjónvarpsþáttaröðum sem kennar eru við Vaktir. (Næturvaktin 2007, Dagvaktin 2008, Fangavaktin 2009).
„Ég er Ólafur Ragnar Hannesson en ég hefði viljað að Georg væri ekki þarna.“
Hver var í hlutverki Georgs í þingflokki Viðreisnar er öllum ljóst.
