Húsnæðisstefna gegn vilja fólksins
Það er erfitt að hugsa sér skýrari vitnisburð um misheppnaða opinbera húsnæðis- og skipulagsstefnu en nýja könnun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar [HMS]. Aðeins 8% þeirra sem sjá fyrir sér búsetu í fjölbýlishúsi vilja búa í stóru fjölbýli með 17 íbúðum eða fleiri. Engu að síður eru 83% þeirra íbúða sem nú eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu einmitt í stórum fjölbýlishúsum.
Þetta er ekki lítið frávik milli framboðs og eftirspurnar. Þetta er kerfi sem virðist í engum tengslum við það sem almenningur óskar eftir.
Íslendingar virðast ekki hafa nokkurn vilja til að búa sífellt þéttar, í stærri fjölbýlishúsum, með minna einkarými, takmörkuðum bílastæðum og oft í skugga. Stjórnmálamenn, skipulagsyfirvöld og sérfræðingar hafa tekið ákvörðun þvert á vilja almennings. Á höfuðborgarsvæðinu voru vaxtarmörk dregin, þétting byggðar varð að trúaratriði í Reykjavík og uppbyggingu beint á afmörkuð þróunarsvæði. Landrýmið skyldi „nýtt betur“.
En fólk hefur greinilega aðrar hugmyndir um hvað felst í góðri nýtingu lands og góðu lífi. Samkvæmt könnun HMS vilja flestir tvö bílastæði við heimili sitt og þeir sem vilja fjölbýli kjósa langflestir lítil eða meðalstór hús.
Afleiðingarnar blasa við. Þrjár af hverjum fjórum nýjum íbúðum sem standa tómar eru í stórum fjölbýlishúsum. Sums staðar hafa verið byggðar ílangar 80–120 fermetra íbúðir með takmarkaðri dagsbirtu, stórri stofu en litlum herbergjum sem engin eftirspurn er eftir.
Auðvitað skýrir hátt vaxtastig og erfitt efnahagsástand að nokkru að 1.900 nýjar íbúðir standi tómar. En vextirnir skýra ekki hvers vegna 83% nýrra íbúða sem hafa verið byggðar falla aðeins að óskum 8% þeirra sem láta sig dreyma um að kaupa eigin íbúð.
Skipulagið hefur brugðist markaðnum — og fólkinu sem á að búa í húsunum.
