AI-ríkið – Ísland sem stærsta tilraunastofa gervigreindar í heimi

Hvað gerðist ef lítið, tæknivætt og vel menntað samfélag tæki meðvitaða ákvörðun um að nýta gervigreind til hins ítrasta? Ekki aðeins til að auðvelda einstök störf eða flýta fyrir afmörkuðum verkefnum heldur til að endurhugsa opinbera þjónustu, auka framleiðni, lækka kostnað ríkis og sveitarfélaga og losa almenning og atvinnulíf undan tímafrekri skriffinnsku. Hvað ef Ísland ákvæði að verða fyrsta samfélagið sem setti sér það markmið að nýta þá tæknibyltingu sem nú gengur yfir heiminn til að byggja upp ódýrara og skilvirkara ríki sem veitir borgurunum um leið betri þjónustu?

Þetta er stærri spurning en hvort íslenska ríkið eigi að innleiða gervigreind. Sú þróun er þegar hafin og verður ekki stöðvuð. Raunverulega spurningin er hversu langt eigi að ganga. Á Ísland að láta þróunina ráðast af ótengdum verkefnum einstakra ráðuneyta og stofnana eða taka pólitíska og samfélagslega ákvörðun um að endurhanna opinbera starfsemi með þá meginreglu að leiðarljósi að gervigreind og sjálfvirkni verði nýtt alls staðar þar sem tæknin getur lækkað kostnað, aukið framleiðni eða bætt þjónustu?

Slík ákvörðun er ekki fyrst og fremst tæknileg heldur efnahagsleg og samfélagsleg. Markmiðið er ekki að kaupa nýjan hugbúnað fyrir ríkisstarfsmenn heldur að fá meiri og betri þjónustu fyrir hverja krónu sem skattgreiðendur leggja til samfélagsins. Verkefnið er að fara skipulega yfir starfsemi ríkis og sveitarfélaga, heilbrigðiskerfið, menntakerfið, almannatryggingar, skattkerfið, löggæslu, leyfisveitingar, eftirlit og aðra opinbera þjónustu og spyrja í hvert sinn sömu spurninga: Er hægt að leysa þetta verkefni betur með gervigreind? Er hægt að gera það hraðar? Er hægt að gera það með minni mannafla? Er hægt að fækka skrefunum? Og þarf verkefnið yfirleitt að vera til í þeirri mynd sem við þekkjum í dag?

Þarna liggur grundvallarmunurinn á því að innleiða nýja tækni og því að nýta tæknibyltingu til samfélagslegra breytinga. Ef gamla stjórnsýslan er látin standa óbreytt og gervigreind einfaldlega sett ofan á hana verður ávinningurinn takmarkaður. Starfsmenn geta skrifað fundargerðir hraðar, leitað upplýsinga á skemmri tíma og unnið úr gögnum með minni fyrirhöfn. Allt er það gagnlegt, en stærsta tækifærið felst í að spyrja hvers vegna fundargerðin þurfi að verða til með sama hætti og áður, hvers vegna upplýsinganna þurfi að afla aftur, hvers vegna borgarinn þurfi að fylla út eyðublaðið og hvers vegna einfalt mál þurfi að fara um hendur margra starfsmanna áður en ákvörðun er tekin.

Þrenn markmið á sama tíma

Þjóðarátak um gervigreind ætti að hafa þrenn skýr markmið sem ekki þarf að vera nein mótsögn á milli. Í fyrsta lagi að lækka kostnað hins opinbera, í öðru lagi að auka framleiðni og í þriðja lagi að stórbæta þjónustu við borgarana. Tæknin gerir í fyrsta sinn raunhæft að stefna að öllum þrennum markmiðunum samtímis.

Launakostnaður ríkisins nam um 344 milljörðum króna árið 2025 og kaup ríkisins á vörum og þjónustu um 264 milljörðum. Það þarf litla hlutfallslega hagræðingu til þess að sparnaður verði mældur í milljörðum. Hvert eitt prósent af launakostnaði ríkisins þýðir sparnað upp á 3,4 milljarða króna, 5% rúma 17 milljarða og 10% um 34 milljarða.

Ef gervigreind og sjálfvirkni gera kleift að vinna sama verkefni með tíu starfsmönnum í stað tólf getur sparnaðurinn komið fram í lægri launakostnaði. Ef tæknin sparar hins vegar lækni tíma við skráningu er líklega skynsamlegra að nýta tímann til að sinna fleiri sjúklingum. Á sumum sviðum á gervigreindin að lækka kostnað, á öðrum að auka afköst og víða getur hún gert hvort tveggja.

Þriðja markmiðið er því að opinber þjónusta verði betri um leið og hún verður ódýrari. Stafræn þjónusta þarf ekki að vera bundin opnunartíma stofnunar eða símatíma starfsmanns. Einföld stjórnsýsluerindi þurfa ekki að bíða í innhólfi fram yfir helgi og upplýsingar þurfa ekki að vera skrifaðar á flóknu stjórnsýslumáli sem aðeins sérfræðingar skilja. Gervigreind getur gert upplýsingar aðgengilegar allan sólarhringinn, útskýrt flókin réttindi á mannamáli og eftir atvikum átt samskipti við einstakling á því tungumáli sem hann skilur best. Við höfum þegar tekið skref í þessa átt.

Tíminn sem hægt er að vinna

Í umfangsmikilli tilraun breska ríkisins, þar sem rúmlega 20 þúsund opinberir starfsmenn nýttu Microsoft Copilot við dagleg verkefni, mældist tímasparnaður að meðaltali 26 mínútur á hverjum vinnudegi. Í annarri og varfærnari rannsókn hjá breska vinnumálaráðuneytinu mældist sparnaðurinn um 19 mínútur á dag. Nítján mínútur jafngilda um 4% af átta klukkustunda vinnudegi.

Þetta kann að virðast hóflegt þar til mínúturnar eru margfaldaðar með þúsundum starfsmanna og hundruðum vinnudaga. Ef framleiðniaukning sem jafngildir 4% næðist yfir allan 344 milljarða króna launakostnað íslenska ríkisins væri verðmæti hennar tæplega 14 milljarðar króna á ári.

Á undanförnum áratugum hefur upplýsingatækni of oft verið notuð til að færa gamla stjórnsýslu yfir á nýtt form. Pappírseyðublaðið varð að rafrænu eyðublaði eða PDF-skjali, bréfið varð að tölvupósti og biðröðin við afgreiðsluborðið varð að rafrænni biðröð. Tæknin breyttist en ferlið lifði góðu lífi.

Gervigreind gefur okkur tækifæri til að ganga lengra og spyrja hvort eyðublaðið þurfi yfirleitt að vera til. Þarf borgarinn að sækja um réttindi sem ríkið veit þegar að hann á? Þarf fyrirtæki að skila upplýsingum sem stjórnvöld hafa þegar undir höndum? Þarf sérfræðingur að verja klukkustundum í að lesa hundruð blaðsíðna til að finna upplýsingar sem tölvukerfi getur fundið á sekúndum? Og þarf einfalt stjórnsýsluerindi að fara um hendur fjögurra eða fimm starfsmanna áður en niðurstaða fæst?

Ein meginregla framtíðarríkisins gæti verið einföld: Hið opinbera spyr aldrei tvisvar um upplýsingar sem það hefur þegar fengið. Með skýrum lagaheimildum, öflugri persónuvernd og samþykki borgarans þar sem þess er þörf eiga kerfi ríkisins að geta miðlað upplýsingum sín á milli. Einstaklingurinn á ekki að vera sendiboði milli opinberra stofnana og fyrirtæki á ekki að þurfa að afhenda mörgum opinberum aðilum sömu upplýsingarnar.

Borgarinn þarf ekki að skilja skipurit ríkisins

Hugsum okkur einstakling sem hyggst stofna fyrirtæki. Í stað þess að þurfa sjálfur að finna út hvaða skráningar eru nauðsynlegar, hvaða skattareglur gilda, hvort starfsleyfi þurfi og hvaða stofnanir koma að málinu, ætti hann einfaldlega að geta sagt: „Ég ætla að stofna fyrirtæki sem sinnir þessari starfsemi.“

Kerfið spyr nauðsynlegra spurninga, sækir upplýsingar sem stjórnvöld hafa þegar undir höndum, útskýrir skyldur og réttindi og framkvæmir þau stjórnsýsluskref sem heimilt er að framkvæma sjálfvirkt. Ef sérstakt mat eða mannleg ákvörðun er nauðsynleg fer málið til viðeigandi sérfræðings.

Sama hugsun getur átt við þegar barn fæðist, einstaklingur missir vinnuna, veikist, kemst á eftirlaunaaldur, flytur til landsins, byggir hús eða þarf að annast dánarbú foreldris. Það er engin sérstök ástæða fyrir því að almenningur eigi að kunna skil á verkaskiptingu stofnana ríkisins. Borgarinn á ekki að þurfa að skilja ríkið til þess að ríkið geti þjónað honum.

Þetta er ekki aðeins framtíðarsýn. Íslensk stjórnvöld hafa þegar stigið fyrstu skref í þessa átt. OECD hefur til dæmis bent á Ask, stafrænan aðstoðarmann Ísland.is, sem dæmi um notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Samkvæmt upplýsingum sem OECD hefur birt tekur Askur við um 90% þeirra samskipta sem berast í gegnum viðkomandi þjónustugátt og hefur dregið úr þörf fyrir símtöl og tölvupóst. Slík dæmi sýna hvað hægt er að gera en um leið hversu miklu lengra mætti ganga ef sama hugsun væri lögð kerfisbundið til grundvallar allri opinberri þjónustu.

Þegar mannshöndin er dýrust

Gervigreind er sérstaklega öflug við verkefni sem byggjast á miklu magni upplýsinga, endurtekningu og skýrum reglum. Þar liggja augljós tækifæri í stjórnsýslunni. Umsóknir geta verið lesnar og flokkaðar sjálfkrafa, gögn borin saman við opinberar skrár, einföld mál farið hraðleið en flókin eða óvenjuleg mál send sérfræðingi til úrlausnar.

Reikningar og innkaupagögn geta verið greind til að finna frávik og óhagkvæmni. Lög, reglugerðir og fyrri stjórnsýsluákvarðanir má bera saman á sekúndum. Gervigreind getur tekið saman gögn fyrir ráðuneyti, greint breytingar á útgjöldum og bent á frávik sem ella gætu farið fram hjá mönnum. Hún getur sömuleiðis nýst við að finna tvíverknað í regluverki og verkefnum stofnana.

Í Suður-Kóreu hefur gervigreind til dæmis verið nýtt við opinber innkaup og samkvæmt OECD hefur kerfið stytt þann tíma sem fer í undirbúning útboðsgagna um 70%. Slíkt dæmi skiptir máli vegna þess að það sýnir að tækifærið liggur ekki aðeins í spjallmennum og textagerð heldur í kjarnastarfsemi hins opinbera.

Heilbrigðiskerfið – meiri þjónusta fyrir sama mannafla

Heilbrigðiskerfið er líklega eitt skýrasta dæmið um hvers vegna ekki má leggja sparnað og framleiðniaukningu að jöfnu. Landspítalinn var með rúmlega 5.200 ársverk árið 2025. Ef tæknin gæti losað 5% af vinnutíma starfsmanna væri fræðilegt umfang aukinnar afkastagetu sambærilegt við meira en 250 ársverk.

Það væri rangt að halda því fram að þar með sé hægt að fækka starfsmönnum um 250. Heilbrigðiskerfið glímir við mikla eftirspurn eftir þjónustu og sú eftirspurn mun að óbreyttu aukast eftir því sem þjóðin eldist. Ávinningurinn felst því fyrst og síðast í því að læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sérfræðingar verji minni tíma í skráningu, leit að upplýsingum, vaktaskipulag og önnur verkefni sem tæknin getur tekið að sér og meiri tíma með sjúklingum.

Ef læknir fær klukkustund til viðbótar með sjúklingum hefur ríkissjóður ekki sparað laun læknisins, en samfélagið hefur fengið meiri heilbrigðisþjónustu fyrir sömu útgjöld.

Sama á við um kennara sem getur varið minni tíma í umsýslu og meiri tíma með nemendum, lögreglumann sem losnar undan hluta skýrslugerðar eða sérfræðing sem getur varið meiri tíma í faglegt mat og minni tíma í leit og samantekt upplýsinga.

Sparnaður með fækkun án uppsagna

Á öðrum sviðum verður hins vegar ekki komist hjá þeirri niðurstöðu að minni þörf verði fyrir mannafla. Ef verkefni sem nú krefst tíu starfsmanna verður hægt að vinna með sex eða sjö er lítið vit í því að halda áfram að manna það með tíu einstaklingum.

Stærsti efnahagslegi ávinningurinn kann að liggja utan ríkisreikningsins. Almenningur og fyrirtæki verja miklum tíma í samskipti við hið opinbera: að leita upplýsinga, skilja reglur, fylla út umsóknir, afla gagna, svara fyrirspurnum, bíða í síma og bíða eftir afgreiðslu. Þessi kostnaður birtist hvergi í fjárlögum en hann er raunverulegur.

Þennan kostnað er hægt að kalla tímaskatt ríkisins. Hann er ekki ákveðinn með lögum, kemur ekki fram á launaseðli og skilar engum tekjum í ríkissjóð, en er engu að síður raunverulegur kostnaður fyrir samfélagið. Klukkustund sem atvinnurekandi ver í að finna upplýsingar, fylla út eyðublað eða bíða eftir afgreiðslu stjórnvalda er klukkustund sem hann getur ekki nýtt til að afla viðskipta, þróa fyrirtæki sitt eða sinna viðskiptavinum. Sama gildir um einstakling sem þarf að taka sér tíma frá vinnu eða fjölskyldu til þess að sinna erindum gagnvart opinberri stjórnsýslu.

Það væri því áhugavert að setja íslenskum stjórnvöldum það markmið að mæla þennan tímaskatt og lækka hann markvisst. Ekki aðeins að mæla hversu mikið ríkið sjálft sparar með gervigreind heldur hversu mörgum vinnustundum það skilar aftur til einstaklinga og atvinnulífs. Ef fyrirtæki og almenningur verja milljónum klukkustunda árlega í samskipti og reglufylgni gagnvart hinu opinbera getur jafnvel 20–30% minnkun þeirrar byrði skapað veruleg þjóðhagsleg verðmæti.

Þarna verður gervigreindin ekki aðeins hagræðingartæki fyrir ríkið heldur tæki til að auka framleiðni alls samfélagsins. Fyrirtæki sem þarf ekki lengur að nota starfsmann í heilan dag í verkefni sem hægt er að ljúka á hálftíma fær raunveruleg verðmæti til baka. Einstaklingur sem fær úrlausn máls á tíu mínútum í stað þess að verja tveimur klukkustundum í síma- og upplýsingaleit fær tíma sinn aftur. Þetta eru verðmæti sem birtast ekki í opinberum hagtölum.

Biðin kostar

Tíminn sem fer í sjálfa afgreiðsluna er aðeins hluti vandans. Bið eftir stjórnvöldum er ekki án kostnaðar fyrir borgarana. Byggingarframkvæmdir geta tafist meðan beðið er eftir leyfi, fyrirtæki getur þurft að fresta ákvörðunum, fjárfesting getur setið á hakanum og einstaklingur getur búið við óvissu um réttindi sín vikum eða mánuðum saman.

Ef gervigreind getur greint umsókn þegar hún berst, kannað hvort öll nauðsynleg gögn fylgi, borið upplýsingar saman við opinberar skrár og sjálfkrafa afgreitt þau mál þar sem öll skilyrði eru uppfyllt, styttist afgreiðslutími mála úr vikum í daga eða jafnvel mínútur. Sérfræðingar stjórnsýslunnar geta þá einbeitt sér að þeim málum þar sem raunverulega þarf mannlegt mat, túlkun laga eða mat á ólíkum sjónarmiðum.

Opinber stjórnsýsla getur orðið skilvirkari án þess að slakað sé á kröfum um fagmennsku og réttaröryggi. Sjálfvirk yfirferð gagna og samræmd málsmeðferð draga úr mistökum og tryggja að sambærileg mál séu meðhöndluð með sambærilegum hætti, enda sé ávallt tryggt að einstaklingur geti fengið mannlega endurskoðun þegar tilefni er til.

Þá vaknar óhjákvæmilega spurningin hversu mikið íslenska ríkið gæti raunverulega sparað. Við henni er ekki hægt að gefa eitt einfalt svar og varhugavert væri að reikna út eina nákvæma tölu. Hins vegar er hægt að draga upp sviðsmyndir sem gefa okkur nokkra hugmynd.

Launakostnaður ríkisins nam um 344 milljörðum króna árið 2025. Ef gervigreind, sjálfvirkni og endurhönnun vinnuferla leiddu til raunverulegrar lækkunar launakostnaðar sem næmi 2% væru það tæpir sjö milljarðar króna á ári. Við 5% væri sparnaðurinn rúmir 17 milljarðar og við 10% rúmir 34 milljarðar. Til viðbótar koma möguleikar til hagræðingar í kaupum á vörum og þjónustu, sem námu um 264 milljörðum króna, meðal annars með betri innkaupum, minni aðkeyptri ráðgjöf, einfaldari upplýsingakerfum og sjálfvirkri umsýslu.

Engin þessara prósentutalna er spá. En ljóst er að tiltölulega hófleg hagræðing getur skilað milljörðum og að það er alls ekki útilokað að beinn fjárhagslegur ávinningur ríkissjóðs af víðtækri AI-væðingu verði með tímanum mældur í tugum milljarða króna á ári.

Þá eru ótalin verðmæti aukinnar þjónustu, meiri framleiðni innan heilbrigðis- og menntakerfisins, styttri biðtími og sá tími sem almenningur og fyrirtæki fá aftur. Heildarávinningurinn fyrir þjóðarbúið getur því orðið mun meiri en sá sparnaður sem nokkurn tíma kemur fram í ríkisreikningi.

Ekki allt verður metið til fjár

Það væru mistök að reyna að setja verðmiða á allan ávinninginn. Hvers virði er að aldraður einstaklingur geti fengið skýrar upplýsingar um réttindi sín þegar honum hentar í stað þess að bíða eftir símatíma? Hvers virði er að einstaklingur sem missir maka sinn þurfi ekki að leita á vefsíðum margra stofnana til að átta sig á því hvað hann þarf að gera, heldur geti einfaldlega sagt kerfinu frá aðstæðum sínum og fengið skýra leiðsögn um næstu skref? Slík þjónusta sparar tíma en hún dregur einnig úr álagi, óvissu og kvíða á stundum þegar fólk hefur annað við tíma sinn og krafta að gera en að glíma við skrifræði.

Betra aðgengi að opinberri þjónustu og einfaldari samskipti við stjórnvöld eru lífsgæði í sjálfu sér.

Ísland er þegar komið af stað

Ísland byrjar ekki með autt blað. Stafræn opinber þjónusta hefur þróast hratt og Ísland.is hefur skapað sameiginlegan inngang að sífellt stærri hluta stjórnsýslunnar. OECD hefur bent á að Ísland standi tiltölulega vel þegar kemur að notendamiðaðri stafrænni þjónustu og þeirri hugsun að hið opinbera starfi sem sameiginlegur stafrænn vettvangur.

Askur, stafrænn aðstoðarmaður Ísland.is, gefur þegar vísbendingu um möguleikana. OECD hefur bent á að hann taki við stórum hluta samskipta sem berast í gegnum þjónustugáttina og hafi dregið úr þörf fyrir símtöl og tölvupóst. Slík reynsla er mikilvæg, en hún ætti fremur að vera upphafið en lokamarkmiðið.

OECD hefur bent á veikleika Íslands þegar kemur að gagnadrifinni stjórnsýslu og opinberum gögnum. Það getur orðið ein stærsta hindrunin á leiðinni að AI-ríkinu. Gervigreind verður ekki betri en þær upplýsingar sem hún fær að vinna með og ef gögn stofnana eru ósamræmd, gömul eða lokuð inni í kerfum sem tala ekki saman verður tæknin aldrei nýtt til fulls.

Því þarf AI-væðing ríkisins að vera jafnframt gagnavæðing ríkisins. Sameiginlegir staðlar, skýrt eignarhald og ábyrgð á gögnum, örugg upplýsingamiðlun milli kerfa og stöðugt mat á gæðum upplýsinga verða hluti af grunninnviðum framtíðarríkisins.

Ísland sem tilraunastofa heimsins

Markmiðið er ekki aðeins að gera íslenska ríkið skilvirkara heldur að gera Ísland að alþjóðlegri tilraunastofu fyrir hagnýtingu gervigreindar.

Fámenni landsins, sem oft er talið efnahagslegur veikleiki, getur orðið styrkur við innleiðingu gervigreinarinnar. Hér búa um 400 þúsund manns í tiltölulega samþættu og tæknivæddu samfélagi. Boðleiðir eru stuttar, opinber þjónusta þegar að stórum hluta stafræn og mögulegt er að samræma verkefni milli ríkis, sveitarfélaga, háskóla og atvinnulífs með öðrum hætti en í samfélögum þar sem tugir eða hundruð milljóna manna búa.

Það er auðveldara að prófa nýtt stjórnsýslukerfi í 400 þúsund manna samfélagi en 50 eða 300 milljóna manna ríki. Áhrifin koma fyrr í ljós, hægt er að breyta um stefnu hraðar og heildarsýn yfir kerfið er möguleg.

Ísland gæti því lýst því yfir að næstu tíu árin verði landið opinn vettvangur fyrir þróun og prófun öruggrar gervigreindar í opinberri þjónustu. Fremstu tæknifyrirtækjum heims væri boðið að vinna með íslenskum fyrirtækjum, háskólum og stjórnvöldum að raunverulegum verkefnum í heilbrigðiskerfi, menntun, stjórnsýslu, orkumálum og öðrum samfélagsinnviðum.

Ísland er í einstakri stöðu. Raforkuframleiðsla landsins byggist nær alfarið á endurnýjanlegum orkugjöfum og kalt loftslag hentar rekstri gagnavera. Eftir því sem gervigreind verður umfangsmeiri eykst eftirspurn eftir reiknigetu og um leið orku til að knýja hana.

Í stað þess að horfa eingöngu á raforku sem aðföng til hefðbundinnar orkufrekrar framleiðslu mætti nýta hluta hennar til að byggja upp stafræna starfsemi þar sem verðmætasköpun byggist á þekkingu, hugbúnaði og hugverkum.